Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Aðild að SI

Nokkrar góðar ástæður fyrir aðild að Samtökum iðnaðarins

  • SI kynningarrit vorið 2006Saman stöndum við sterkari
    Rödd iðnaðarins heyrist þegar við tölum einum rómi
  • Við erum málsvari iðnaðar á Íslandi
    Það er hlustað á okkur
  • Sterk samtök hafa áhrif á starfsskilyrði fyrirtækja
  • Við þekkjum þarfir þínar og þú átt greiðan aðgang að faglegri þjónustu á fjölmörgum sviðum
  • Við veitum þér upplýsingar og ráðgjöf
  • Hjá okkur færð þú aðgang að samstarfi við önnur iðnfyrirtæki til að bæta þinn eigin rekstur
  • Við gætum hagsmuna þinna ef að þér er vegið

Fyrirtæki og sjálfstæðir atvinnurekendur sem starfa í framleiðslu- og þjónustuiðnaði eða skyldum greinum geta orðið aðilar að Samtökum iðnaðarins og viðeigandi aðildarfélagi þar sem það á við. Aðild að Samtökum iðnaðarins getur því orðið með tvennum hætti, beinni aðild og aðild gegnum aðildarfélag.

Þeir sem óska eftir aðild verða að senda skrifstofu Samtaka iðnaðarins eða viðkomandi aðildarfélags skriflega inntökubeiðni. Þar þurfa að koma fram upplýsingar um stjórn, stjórnendur, starfssvið, launagreiðslur og veltu. Eyðublöð fyrir inntökubeiðni fást á skrifstofu Samtakanna og hjá viðkomandi aðildarfélögum.

Samtök iðnaðarins eru aðili að Samtökum atvinnulífsins - SA. Félagsmenn Samtakanna verða því einnig félagsmenn SA og greiða þangað félagsgjöld.


Bein aðild

Fyrirtæki sem ekki falla undir einstök aðildarfélög innan Samtaka iðnaðarins sækja um sem beinir aðilar að Samtökunum. Ef meirihluti stjórnar samþykkir inntökubeiðnina tekur aðild þá þegar gildi.


Aðild gegnum aðildarfélög

Fjölmörg aðildarfélög (iðngreina- og meistarafélög) eiga aðild að Samtökum iðnaðarins og þar með félagsmenn þeirra. Fyrirtæki sem heyra undir einstök aðildarfélög sækja um aðild að viðkomandi félagi og verða með þeim hætti aðilar að Samtökum iðnaðarins í samræmi við lög viðkomandi félags.

Auk félagsgjalda til Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnulífsins greiða þessi fyrirtæki sérstakt félagsgjald til viðkomandi aðildarfélags.

Umsóknin er send til stjórnar viðkomandi aðildarfélags. Ef meirihluti stjórnar þess samþykkir inntökubeiðnina tekur aðild að viðkomandi félagi, SI og SA þá þegar gildi.

 

 

Í brennidepli

 

Áhugavert efni

 

Sérvefir innan SI

  • Meistarinn
    Veldu þér fagmann þegar vanda skal til verks.
  • GSI.is
    Markviss stjórnun leiðir til bættrar afkomu.
  • NHKI-PIP
    Putting IC into practice.


 

 

 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.