ÁR NÝSKÖPUNAR - frumkvæði, fjárfesting, farsæld

Ár nýsköpunar-hvítt lógóSamtök iðnaðarins hafa ákveðið að efna til átaksverkefnis sem hlotið hefur nafnið Ár nýsköpunar – frumkvæði, fjárfesting, farsæld.

Markmið verkefnisins er að kynna og efla nýsköpun sem leið til endurreisnar í íslensku atvinnulífi og vinna að vegvísi til framtíðar með verðmætasköpun og aukinn útflutning að leiðarljósi. 

 

Megin viðfangsefni verkefnisins er að vinna á markvissan hátt að því að bæta starfsskilyrði og stuðningsumhverfi nýsköpunar í fyrirtækjum m.a. með aukinni kynningu og hvatningu á sem breiðustum grunni og í sem flestum atvinnugreinum.

Árangur, sem verkefnið miðar að felst m.a. í að:

  • kynna það sem vel er gert, efla ímynd atvinnugreina og hvetja sem flesta til dáða í verðmætasköpun á grunni hönnunar og nýsköpunar
  • efla útflutning íslenskra fyrirtækja
  • efla samstarf fyrirtækja um nýsköpun og útflutning á lykilsviðum, jafnt innan lands sem utan, m.a. annars í formi „klasa“ og „samstarfsvettvanga“
  • efla samstarf um þróun lausna fyrir opinbera innkaupaaðila á grunni PPP-aðferðafræði
  • efla og straumlínulaga stoðkerfi nýsköpunar og bæta starfsskilyrði fyrirtækja
  • auka framboð á fólki til nýsköpunarstarfa í fyrirtækjum og treysta mennta- og þekkingarstig í atvinnulífinu allmennt
  • auka almennan skilning á mikilvægi nýsköpunar í fyrirtækjum og á öllum stigum samfélagsins með aukin gæði og verðmætasköpun að leiðarljósi
  • efla tölfræði og hagtölugerð í öllum atvinnugreinum til að bæta gæði í ákvarðanatöku og framkvæmd

Nýsköpun er, í sinni einföldustu mynd, að skapa nýjar lausnir sem og bæta það sem þegar er til staðar. Á þetta jafnt við um nýja og endurbætta vöru, þjónustu, tækni, aðferðafræði, framleiðsluaðferð, stjórnskipulag, verklag og leið til sölu- og markaðssetningar.

ÁR NÝSKÖPUNAR – frumkvæði – fjárfesting - farsæld er verkefni sem beinir kastljósinu að nýsköpun sem raunhæfustu leiðinni til aukinnar verðmætasköpunar og endurreisnar íslensks atvinnulífs. Lögð er áhersla á markvisst og samstillt átaksverkefni sem flestra sem tengjast sviðinu á grunni frumkvæðis, fjárfestingar og farsældar.

Frumkvæði er lykilorð sem á jafnt erindi við einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld og stofnanaumhverfi. Án frumkvæðis verður engin nýsköpun og endalaus bið eftir því að aðrir geri hlutina er ekki vænleg til árangurs. Núna þurfa allir að leggjast á árar til að auka verðmætasköpun og fjölga innihaldsríkum störfum.

Fjárfesting er lykilorð, þar sem fjármagn er hreyfiafl framkvæmda og umsvifa. Án fjárfestingar ríkir stöðnun og athafnaleysi. Fjárfesting er nauðsynleg á öllum sviðum jafnt í menntun, þekkingu, þróun, sem og mannvirkjagerð og nýjum atvinnutækifærum. Nýta þarf til hins ýtrasta tækifæri í fjárfestingum og innkaupum á vegum ríkis og sveitarfélaga, til að skapa nýjar og verðmætar lausnir sem gætu orðið grunnur að verðmætum lausnum á markaði og í útflutningi.

Farsæld og lífsgæði eru það sem land og þjóð sækist eftir til framtíðar. Farsæld í fjárfestingum er forsenda þess að árangur náist bæði fjárhagslegur og samfélagslegur. Við berum þá ábyrgð að gera okkar besta í ákvarðanatöku og byggja þær á réttum upplýsingum og langtímahugsun. Þess vegna þarf að eiga sér stað opin og fagleg umræða um Ísland framtíðar í stað afvegaleiðandi sérhagsmunaumræðu sem oft endar úti í hafsauga.

Ísland þarf á öllum kröftum að halda til að skapa nýja framtíð á grunni nýsköpunar, verðmætasköpunar og aukins útflutnings þar sem frumkvæði, fjárfesting og farsæld þurfa að vera leiðarljósið. Þess vegna undirbúa Samtök iðnaðarins núna átaksverkefni undir kjörorðinu ÁR NÝSKÖPUNAR sem lesa má bæði í eintölu og fleirtölu.

Framkvæmd og áhersluverkefni                  

Markmið verkefnisins er að kynna og efla nýsköpun sem leið til endurreisnar í íslensku atvinnulífi og vinna að uppbyggingu þess á sem víðustum grunni þannig að breið samstaða náist um verkefnið.

Nokkuð hefur miðað í umbótum í nýsköpunarumhverfi fyrirtækja í kjölfar hrunsins sem kemur fyrirtækjum almennt til góða óháð starfssviði, umfangi og staðsetningu. Nefna má ný lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki sem samþykkt voru um síðustu áramót og aðkomu Atvinnuleysistryggingarsjóðs til að greiða fyrir fjölgun nýsköpunarstarfa í fyrirtækjum. Þá hefur gengi krónunnar gert útflutningsfyrirtæki samkeppnishæfari en áður þó að markaðskostnaður erlendis hafi aukist.

Hins vegar er fjölmargt sem þyngt hefur róður fyrirtækja í kjölfar hrunsins og nægir að nefna samdrátt á flestum mörkuðum, aukinn kostnað við aðföng, flutninga og markaðsstarf, auknar skattaálögur, gjaldeyrishöft og erfiða stöðu á fjármagnsmarkaði.

Því er það mikilvægara en nokkru sinni að herða róðurinn og nýta þau nýsköpunartækifæri sem bjóðast. Fylgja eftir umfangsmiklum verkefnum á borð við fjárfestingar í orku- og umhverfistengdum greinum, endurskipulagningu stuðnings- og fjármögnunarumhverfis fyrirtækja með nýsköpun, verðmætasköpun og auknum útflutningi. Þessi verkefni krefjast samstillts átaks ólíkra aðila þar sem beita mætti „aðferðafræði klasa“ og „samstarfsvettvanga“ ólíkra aðila sem tengjast lykilsviðum. Með því yrði hægt að stíga mikilvægt skref til að straumlínulaga betur það umhverfi sem fyrirtækin starfa í, hraða uppbyggingu og arðsemi fjárfestinga í atvinnulífinu sem einu færu leiðina til að vinna okkur út úr kreppunni.

Samstarf hagsmunaaðila, stjórnvalda og annarra stuðningsaðila um öflugt nýsköpunarstarf

Kröftugt nýsköpunar- og þróunarstarf er forsenda framfara í atvinnulífinu. Fyrirtæki þurfa að vera í frjóu samstarfi við innlenda og erlenda viðskiptavini og birgja í hvetjandi og jákvæðu starfsumhverfi sem þó veitir aðhald með skýrum reglum þar sem það á við. Reynslan hefur sýnt að mestur árangur næst í nýsköpunarstarfi þar sem tekist hefur gott samstarf milli þeirra sem endurspegla þarfirnar á markaði og þeirra sem vinna að því að skapa nýjar og betri lausnir.

Viðfangsefni í starfs- og nýsköpunarumhverfi fyrirtækja eru þess eðlis að þau krefjast samstarfs hagsmunasamtaka þeirra, stjórnvalda og annarra stuðningsaðila. Slíkt samstarf hefur verið með ýmsum hætti hér á landi á undanförnum árum. Gott dæmi um vel heppnað samstarf af þessum toga er Samstarfsvettvangur sjávarútvegs og iðnaðar, Heilbrigðistæknivettvangur og Hátækni- og sprotavettvangur.

Hugmyndir að verkefnum og atburðum innan ramma verkefnisins ÁR NÝSKÖPUNAR

Undanfarið hefur verið unnið að hugmyndaöflun um markmið og aðgerðir innan ramma verkefnisins. Fjölmargir hafa tekið þátt í þeirri vinnu og vonir standa til að fjölmargir eigi eftir að bætast í þann hóp með góðar hugmyndir. Því fleiri sem hafa frumkvæði að því að standa fyrir atburðum og verkefnum sem fallið gætu innan ramma verkefnisins því betra. Sett verður upp samræmt dagatal á vef SI sem fylla má atburði inn í þannig að dagskrá verði sem þéttust í tengslum við ÁR NÝSKÖPUNAR.

 

Senda síðu



Þetta vefsvæði byggir á Eplica