Meistarafélag Suðurlands, MFS

Meistarafélag Suðurlands er félag meistara og fyrirtækja í löggiltum byggingargreinum á Suðurlandi, í Árnes- Rangárvalla- og Vestur - Skaftafellssýslu. Félagsmenn eru aðallega í byggingariðnaði.

Meistarafélag Suðurlands

Markmið félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og stuðla að faglegum vinnubrögðum í greininni. Félagið vinnur meðal annars að aukinni menntun, verkkunnáttu og vandvirkni í byggingariðnaði og er félagsmönnum til aðstoðar í öllu sem viðkemur atvinnurekstri þeirra.

Meistarafélag Suðurlands hefur komið sér upp sinni eigin gæðahandbók. Félagið og aðildarfyrirtæki þess eru aðilar að Samtökum iðnaðarins ásamt öllum helstu bygginga- og verktakafyrirtækjum landsins

Vefsíða MFS:  www.mfs.is
Tengiliður hjá SI: Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, fridrik@si.is

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Ábyrgðarsjóð Meistaradeildar SI.

Stjórn

Stjórn kosin 2023

  • Valdimar Bjarnason formaður
  • Sigurður Sigurjónsson varaformaður
  • Valur Örn Gíslason gjaldkeri
  • Stefán Helgason ritari
  • Baldur Pálsson, meðstjórnandi 
  • Hjálmar F. Valdimarsson, meðstjórnandi 

Stjórn kosin 2020
  • Formaður: Valdimar Bjarnason til 2021
  • Varaformaður: Sigurður Sigurjónsson til 2022
  • Gjaldkeri: Valur Örn Gíslason til 2022
  • Ritari: Guðlaugur Stefánsson til 2021
  • Meðstjórnandi: Baldur Pálsson til 2021
  • Meðstjórnandi: Sigmundur Felixson til 2022
  • Varamenn: Arnar Ingi Ingólfsson, Aðalsteinn Aðalsteinsson og Stefán Helgason