Múrarameistarafélag Reykjavíkur, MM

Múrarameistarafélag Reykjavíkur var stofnað 18. mars 1933.

Múrarameistarafélag Reykjavíkur

Undirbúningsfundur að stofnun Múrarameistarafélags Reykjavíkur var haldinn 9. febrúar 1933 og sóttu hann 22 þeirra 28 múrarameistara, sem þá störfuðu í Reykjavík. Skoðanir voru nokkuð skiptar um félagsstofnunina, en ákveðinn kjarni var ákveðinn. Boðað var til stofnfundar 18. mars 1933. Þar voru félagslög samþykkt og kosin fyrsta stjórn Múrarameistarafélagsins. Sérstök laganefnd hafði setið að stórfum fyrir fundinn. Stofnendur voru 16 talsins.

Eitt fyrsta verk nýkjörinnar stjórnar var að staðfesta samning við sveina um verkaskiptingu. Samningur þessi kvað á um skyldur beggja málsaðila. Sveinar skuldbundu sig til að vinna undir stjórn meistara og að bjóða ekki í byggingar og múrvinnu að undanskildum viðgerðum sem kostuðu 50 krónur eða lægri upphæð. Meistarar skuldbundu sig til að nota einvörðungu meðlimi sveinafélagsins til þeirra verka sem nefnd voru í verðskrá félagsins og einnig að vinna aðeins sem verkstjórar við múrverk. Samningurinn var undirritaður 22. apríl 1933 og tók þegar gildi. Hann tryggði báðum félögum og meðlimum þeirra starfsgrundvöll.

Vefsíða MM:  www.murarameistarar.is

Tengiliður hjá SI: Elísa Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, elisa@si.is.

Hér er hægt að nálgast upplýsingar um Ábyrgðarsjóð Meistaradeildar SI.

Stjórn 2023

  • Hannes Björnsson, formaður
  • Gylfi M. Einarsson, varaformaður
  • Þorvarður Gísli Guðmundsson, ritari
  • Ævar Már Finnsson, gjaldkeri
  • Bergþór Bergþórsson, meðstjórnadi
  • Varstjórn: Birgir M. Björnsson, Guðmundur Árni Pálsson og Svanur Þórisson

Stjórn 2020

  • Hannes Björnsson, formaður
  • Jón K. Sigurfinnsson, varaformaður
  • Gylfi M. Einarsson, ritari
  • Ævar Már Finnsson, gjaldkeri
  • Friðrik Hansen, meðstjórnadi
  • Varstjórn: Hörður Reynir Þórðarson, Guðmundur Árni Pálsson og Svanur Þórisson

Fyrri stjórn

  • Formaður: Sigurður Heimir Sigurðsson 
  • Varaformaður: Hannes Björnsson
  • Ritari: Ævar Már Finnsson
  • Gjaldkeri: Auðunn Kjartansson
  • Meðstjórnandi: Jón K. Sigurfinnsson