Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co.
Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co ehf. var stofnuð 12. júní árið 1912 af Kristjáni Jónssyni og var reksturinn í hans höndum allt til ársins 1960 að sonur hans, Snorri, tók við stjórninni. Í júní 1990 færðist fyrirtækið til þriðja ættliðar er tveir synir Snorra, Kjartan og Birgir,tóku við rekstrinum. Þannig er Brauðgerðin eitt elsta iðnfyrirtækið innan sömu fjölskyldu á Íslandi og hefur verið í fararbroddi í framleiðslu á brauðum og kökum alla tíð. Einkunnarorð okkar eru: Merkið tryggir baksturinn. Fyrirtækið rekur eigin brauðbúðir á Akureyri, í Hafnarstræti 98, verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð og Hrísalundi 3, þar sem verksmiðjuhúsið er og allur bakstur fer fram. Framleiðsluvörur fyrirtækisins fást í öllum helstu stórmörkuðum og matvöruverslunum á markaðssvæði fyrirtækisins sem nær frá Hrútafirði í vestri til Fáskrúðsfjarðar í austri.
- Kennitala: 480169-0859
- Heimilisfang: Hrísalundi 3
- Símanúmer: 460 5900
- Faxnúmer: 460 5918
- Netfang: braudgerd (hjá) braudgerd.is
- Starfsmannafj.: 70
Aðrar upplýsingar