Leit í félagatali SI

 

Meistarafélag í hárgreiðslu

Hársnyrting er löggilt iðngrein. Á hársnyrtistofum er veitt fagleg þjónusta meistara í hárgreiðslu og hárskurði ásamt ráðgjöf við val á þvotta-, litunar- og næringarefnum og meðferð hársins eftir þörfum hvers og eins.                                              

Meistarafélag í hárgreiðslu er fagfélag hárgreiðslu- og hárskerameistara. Tilgangur félagsins er að efla samvinnu félagsmanna, eiga gott samstarf við hliðstæð samtök erlendis, viðhalda öflugri endurmenntun fagfólks í greininni og stuðla að framförum með upplýsinga- og fræðslustarfsemi, sýningum og keppnum. Félagið og aðildarfyrirtæki þess eru aðilar að SI.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica