Fréttasafn



11. nóv. 2016 Almennar fréttir Nýsköpun

107 milljóna evra samningur fyrir nýsköpun íslenskra fyrirtækja

Fyrir nýsköpunarumhverfið hér á landi bárust ánægjulegar fréttir frá Arion banka þegar tilkynnt var um undirritun samnings milli Arion banka og European Investment Fund, EIF. Um er að ræða InnovFin ábyrgðarsamning sem miðar að hagstæðum lánveitingum til lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem ætla að innleiða nýjungar í starfsemi sinni. Samningurinn gerir Arion banka kleift að veita fyrirtækjum lán á næstu tveimur árum sem eru studd með ábyrgð frá Fjárfestingarsjóði Evrópu í samræmi við Horizon 2020, rannsókna- og nýsköpunarrammaáætlun ESB. Áætlað er að stuðningur ESB við íslensk nýsköpunarfyrirtæki leiði af sér lánasafn að andvirði 107 milljón evra. EIF ábyrgist helming lánsfjárhæðar hvers láns, sem Arion banki veitir, samkvæmt samningnum.

Framkvæmdastjóri Fjárfestingarsjóðs Evrópu, Pier Luigi Gilibert, segir í tilkynningu Arion banka að það sé gleðilegt að undirrita fyrsta InnovFin ábyrgðarsamninginn á Íslandi, til hagsbóta fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. „Þetta er jafnframt fyrsti InnovFIn samningurinn sem Fjárfestingarsjóður Evrópu gerir í EFTA ríki. 107 milljónir evra er veruleg upphæð fyrir íslensk fyrirtæki og við erum sannfærð um að lánasafnið, sem Arion banki ætlar að byggja upp, stutt ábyrgðum InnovFin, muni efla nýsköpun á Íslandi.“

Einnig er haft eftir framkvæmdastjóra ESB í málefnum rannsókna, vísinda og nýsköpunar, Carlos Moedas, að samningurinn muni hjálpa fyrirtækjum að ná markmiðum sínum og leggja sitt af mörkum til hagvaxtar og atvinnusköpunar á Íslandi.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir Arion banka leggja mikla áherslu á að styðja við hvers kyns nýsköpun. „Samningurinn við European Investment Fund er liður í því og gerir okkur kleift að lána til lítilla og meðalstórra fyrirtæki vegna fjárfestinga þeirra í nýsköpun – í víðustu merkingu þess orðs. Þessi samningur gerir okkur kleift að lána á hagstæðari kjörum en ella þar sem sjóðurinn tekur á sig hluta þeirrar áhættu sem í lánveitingunni felst. Við erum spennt að kynna þessa nýjung fyrir íslenskum fyrirtækjum sem eru að fjárfesta í nýsköpun, vöruþróun, nýjum framleiðsluaðferðum eða sókn á nýja markaði.“

Markmiðið með ábyrgðum InnovFin fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er að hvetja fjármálastofnanir til að lána fyrirtækjum, með færri en 500 starfsmenn, til fjárfestinga og/eða fjármögnunar rannsókna, þróunar og nýsköpunar, með fjárstuðningi frá ESB. Fjárfestingarsjóður Evrópu velur fjármálastofnanir víðs vegar um Evrópu sem lýst hafa yfir áhuga á því að gerast milliliðir.

Myndin sýnir Höskuld H. Ólafsson, bankastjóra Arion banka, og Pier Luigi Gilibert, framkvæmdastjóra Fjárfestingarsjóðs Evrópu rita undir samninginn.

Nánar á vefsíðu Arion banka.