AGUSTAV sýnir í Illums Bolighus
AGUSTAV sem er aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins er meðal íslenskra hönnuða sem verða á sýningu sem sett verður upp í Illums Bolighus í Kaupmannahöfn núna í maí. Sýningin opnar fimmtudaginn 24. maí næstkomandi. Sýningin er unnin í samstarfi Illums Bolighus, Hönnunarmiðstöðvar Íslands og sendiráðs Íslands í Kaupmannahöfn í tilefni af aldarafmæli fullveldisins.
Sýnendur eru auk AGUSTAV: FÓLK — Erla Sólveig Óskarsdóttir — Ragna Ragnarsdóttir — MARÝ — Bjarni Sigurdsson Ceramics — SKATA — Dögg Design — Berlinord — ANNA THORUNN — Fuzzy — FÆRID — Bryndís Bolladóttir — Þórunn Árnadóttir — Kjartan Óskarsson.