Ályktun Iðnþings 2017
Hér fyrir neðan er ályktun Iðnþings 2017 sem samþykkt var á aðalfundi Samtaka iðnaðarins sem haldin var í Kaldalóni í Hörpu í morgun:
Stóra verkefnið á Íslandi er að skapa aðstæður sem uppfylla metnað okkar fyrir góðu samfélagi og samkeppnishæfu umhverfi. Efla þarf og verja stöðu íslensks iðnaðar og atvinnulífs í bráð og lengd til þess...
... að störfum fjölgi, fjölbreytni aukist og atvinnulíf skapi þannig gott líf fyrir fólk á öllum aldri í öllum landshlutum
... að ungt og vel menntað fólk finni kröftum sínum farveg hér á landi til framtíðar
... að Ísland verði þekkt fyrir að nýta þau tækifæri sem felast í tæknibreytingum, grænum lausnum og aukinni framleiðni á öllum sviðum
Samtök iðnaðarins leggja áherslu á 12 atriði sem varða leiðina að þessu marki:
- Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir áfall í útflutningstekjum og vaxandi flótta fyrirtækja úr landi samfara hraðri styrkingu krónunnar. Lækka þarf vexti, afnema höft að fullu og treysta hagstjórn.
- Meiri stöðugleika þarf í gjaldmiðlamálum, meiri fyrirsjáanleika og minni vaxtamun. Það getur aðeins gerst með endurskoðun peningastefnunnar.
- Einfalda þarf skattkerfið frekar, lækka jaðarskatta og færa á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingarstað aftur upp í 100%. Það stuðlar að betri skattheimtu og dregur úr hættu á svartri atvinnustarfsemi og skattaundanskotum.
- Launatengd gjöld eru há og íþyngjandi fyrir fyrirtæki. Tryggingagjald þarf að lækka hratt til sama horfs og var 2008.
- Innviðafjárfestingar verður að setja í forgang og mæta þannig miklum uppsöfnuðum halla og brýnni þörf. Opna þarf á fjölbreyttari form fjármögnunar framkvæmda.
- Nauðsynlegt er að auka framboð lóða og skapa hvata til byggingar ódýrra íbúða í takt við þarfir fólks. Vegna ófremdarástands á húsnæðismarkaði fá stórir hópar fólks ekki húsnæði við hæfi.
- Menntun þarf að vera í betra samræmi við þarfir atvinnulífs og samfélags. Fjölga þarf verulega nemum í iðn- og verkgreinum og leggja þarf meiri áherslu á tækni- og forritunarnám í takt við tæknibreytingar.
- Parísarsamkomulagið um minnkun gróðurhúsalofttegunda er krefjandi áskorun. Markmiðin munu ekki nást nema í víðtækri sátt og samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs. Ísland getur tekið forystu á ákveðnum sviðum grænnar tækni.
- Auka þarf raforkuöryggi um land allt og samkeppni á raforkumarkaði og innleiða þarf markaðslausnir. Nauðsynlegt er að mæta betur fjölbreyttum raforkuþörfum millistórra raforkunotenda. Á sama tíma þarf að verja samkeppnishæfni orkunotenda á Íslandi.
- Umgjörð alþjóðlegrar starfsemi á Íslandi þarf að vera samkeppnishæf. Afnám hámarks á endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar og efling fjármögnunarumhverfis sprotafyrirtækja eru nauðsynlegur þáttur í því.
- Gagnatengingar við Evrópu og Bandaríkin eru lífæð nútíma samfélags og þekkingariðnaðar. Nýta verður tækifærin sem felast í stórbættum gagnatengingum með nýrri uppbyggingu. Tryggja þarf öryggi og gæði fjarskipta um land allt.
- Endurskoðun búvörusamninga og tollasamningar við aðrar þjóðir þurfa að fela í sér jafnræði atvinnugreina, stuðning við nýsköpun og aukna framleiðni í landbúnaði, ásamt því að verja sérstöðu íslensks landbúnaðar.