Fréttasafn



9. maí 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ársfundur Samáls

Álið verður aftur nýtt er yfirskrift ársfundar Samáls sem haldinn verður í Kaldalóni í Hörpu miðvikudaginn 16. maí næstkomandi kl. 8.30-10.00. Fyrir fundinn verður boðið upp á léttan morgunverð frá 8.00 og eftir fundinn verða kaffiveitingar. Á vef Samáls er hægt að skrá sig á fundinn. 

Fundarstjóri er Bjarni Már Gylfason. 

Dagskrá

  • Staða og framtíð íslensks áliðnaðar - Ragnar Guðmundsson stjórnarformaður Samáls
  • Ávarp - Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir iðnaðarráðherra
  • Horfur í áliðnaði á heimsvísu - Justin Hughes frá alþjóðlega greiningarfyrirtækinu CRU
  • Tækifæri í endurvinnslumálum á Íslandi - Líf Lárusdóttir verkefnastjóri hjá Gámaþjónustunni
  • Nytjahlutir verða til úr áli í sprittkertum - Ingibjörg Hanna, Olga Ósk og Studio Portland
  • Ál og fiskur - Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls
  • Kaffispjall að loknum fundi. 

Fundargestum gefst kostur á að skoða hönnunarmuni frá sýningunni #endurvinnumálið sem sett var upp fyrir afmælisopnun Hönnunarmars, en þar vinna fjögur hönnunarteymi nytjahluti sem framleiddir eru úr endurunnu áli. Tilefnið er endurvinnsluátak áls í sprittkertum sem efnt var til yfir hátíðarnar. Undirtektir almennings voru frábærar og varð það til þess að söfnun sprittkerta er orðinn varanlegur kostur í endurvinnsluflóru landsmanna.