Fréttasafn



4. maí 2018 Almennar fréttir

Atvinnulífið boðar oddvita sjö framboða á kosningafund

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök verslunar og þjónustu standa fyrir opnum umræðufundi um sambúð borgar og atvinnulífs með oddvitum sjö framboða í Reykjavík í Gamla bíói, Ingólfsstræti 2a, miðvikudaginn 9. maí kl. 8.30-10.00.

Oddvitarnir sem mæta á fundinn eru: Dagur B. Eggertsson, Samfylkingunni, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Pírötum, Eyþór Arnalds, Sjálfstæðisflokknum, Ingvar Jónsson, Framsóknarflokknum, Líf Magneudóttir, Vinstri-grænum, Vigdís Hauksdóttir, Miðflokknum, og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Viðreisn. 

Fyrirspyrjendur eru Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI. Fundarstjóri er Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA. 

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku. Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn. 

Sambud-borgar-og-atvinnulifs