Fréttasafn



4. okt. 2018 Almennar fréttir Menntun

Bein útsending frá fundi um nýja menntastefnu SI

Bein útsending er frá fundi Samtaka iðnaðarins um nýja menntastefnu samtakanna sem nú stendur yfir í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík. Á fundinum sem ber yfirskriftina Mætum færni framtíðarinnar er farið yfir helstu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir til að skapa menntakerfi fyrir nýjar kynslóðir sem styður við velmegun og samkeppnishæfni þjóðarbúsins. Kynntar verða tillögur að umbótum sem miða að því að menntun mæti þörfum atvinnulífs framtíðarinnar þar sem krafist verður annarrar færni en nú þekkist.

 Fundarstjóri er Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI. 

Dagskrá

  • Atvinnulífið og menntun - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Ný menntastefna SI - Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri mennta- og mannauðsmála hjá SI, og Vilhjálmur Hilmarsson, sérfræðingur í greiningum hjá SI
  • Færni framtíðarinnar - Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, og Guðmundur Hafsteinsson, yfirmaður vöruþróunar á Google Assistant
  • Pallborðsumræður - Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Karl Frímannsson, fræðslustjóri Akureyrarbæjar.


Hér er hægt að horfa á beina útsendingu:

https://vimeo.com/293319413


 Á mbl.is er hægt að horfa á útsendinguna.