Fréttasafn



8. nóv. 2016 Mannvirki

Byggingadagur IÐUNNAR var vel sóttur

Byggingadagur IÐUNNAR fræðsluseturs sem fram fór 4. nóvember síðastliðinn í húsnæði IÐUNNAR í Vatnagörðum 20 tókst vel. Samtök iðnaðarins tóku þátt í deginum og lagði fjöldi fólks leið sína í Vatnagarða. Á byggingadeginum kynntu aðilar í byggingariðnaðinum hugmyndir og lausnir til að byggja ódýrt húsnæði. Kynntar voru nýjungar frá fjölmörgum aðilum og fyrirtækjum í byggingariðnaðinum. Gestum var boðið upp á létta tóna og veitingar.

Meðal þátttakenda voru: 

  • Samtök iðnaðarins
  • FIT
  • Byggiðn
  • Mannvirkjastofnun
  • Límtré – Vírnet
  • Hannarr
  • Verklagnir
  • YTONG
  • Struktur
  • FIBRA
  • BYKO
  • Íslandsbanki
  • Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • Hellweg
  • Landshús
  • Mælingastofa húsasmiða
  • Modulus
  • Íslenski byggingavettvangurinn