Fréttasafn



15. feb. 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Davíð Arnórsson bakari í Vestmannaeyjum á Köku ársins

Landssamband bakarameistara, LABAK, efndi nýlega til árlegrar keppni um Köku ársins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn Kaka ársins. Höfundur Köku ársins 2017 er Davíð Arnórsson, bakari hjá fyrirtækinu Stofan bakhús í Vestmannaeyjum, og ætlar hann að afhenda frú Elizu Reid fyrstu kökuna á Bessastöðum á morgun. 

Keppnin var haldin í samstarfi við Mjólkursamsöluna og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi skyr frá MS. Sigurkakan er lagskipt og inniheldur m.a möndlukókosbotn, hindberjahlaup og skyrfrómas með lime. Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna LABAK um allt land föstudaginn 17. febrúar og verður til sölu það sem eftir er ársins.

Dómarar í keppninni voru Margrét Kristín Sigurðardóttir frá Samtökum iðnaðarins, Aðalsteinn Magnússon, sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni, og Gunnar Örn Gunnarsson, bakarameistari og sölumaður hjá Ölgerðinni.