Fréttasafn



29. jún. 2017 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Einkaaðilar geta flýtt fyrir uppbyggingu innviða

Í Fréttablaðinu í dag er rætt við Ingólf Bender, hagfræðing SI, sem segir stjórnvöld verða að skoða með opnum hug aðkomu einkaaðila að fjármögnun og uppbyggingu samgöngumannvirkja. Þar segir að vexti ferðaþjónustunnar á undanförnum árum hafi ekki verið fylgt nægjanlega eftir með viðhaldi og nýjum fjárfestingum í vegakerfinu. Einkaaðilar, hvort sem er lífeyrissjóðir eða einkafjárfestar, geti komið að stórum framkvæmdum sem taldar eru þjóðhagslega arðvænar og flýtt þannig fyrir uppbyggingunni.

Í samtali við blaðið segir Ingólfur að fjárfestingar hins opinbera á sviði vegasamgangna hafi verið um 1,0 prósent af landsframleiðslu í fyrra. Hlutfallið hafi verið mjög lágt síðustu sex árin eða að jafnaði um 0,9 prósent. Til samanburðar hafi meðaltal fjárfestinga hins opinbera á þessu sviði verið 1,6 prósent af landsframleiðslu tvo áratugina þar á undan. „Við höfum bætt verulega í flugsamgöngur og fjárfest af myndarskap í bifreiðum, svo dæmi séu tekin, en fjárfestingar í vegasamgöngum hafa algjörlega setið á hakanum. Við verðum að bæta úr því ef því ætlum að tryggja sem best umferðaröryggi og byggja undir ferðaþjónustu þar sem ferðamenn fara héðan heilir á húfi og sáttir við dvöl sína.“

Vísir, 29. júní 2017.