Fréttasafn



10. okt. 2017 Almennar fréttir

Eru róbótarnir að taka yfir?

Eru róbótarnir að taka yfir? er yfirskrift annars fundar í fundaröð IÐUNNAR og Samtaka iðnaðarins um fjórðu iðnbyltinguna. 

Bein útsending frá fundinum.

Á fundinum sem haldinn er í húsnæði IÐUNNAR að Vatnagörðum 20 verður fjallað um þær miklu tækniframfarir sem eiga sér stað og munu hafa áhrif á öll störf í náinni framtíð. Fundarstjóri er Ingi Rafn Ólafsson, sviðsstjóri hjá IÐUNNI fræðslusetri. Boðið verður upp á léttan morgunverð.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Dagskrá fundarins

Kristinn8.30 – 9.00 Eru róbótarnir að taka yfir?  Kristinn Andersen, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands. Hann fer yfir notkun róbóta fram til þessa. Kristinn fjallar um stöðuna í dag og þau margbreytilegu notkunarsvið sem fyrirsjáanleg eru á næstu árum. Skoðuð verður möguleg framtíð með þróun nýrrar tækni í vélbúnaði og gervigreind.

Margret-Arnardottir-10-1

9.00 – 9.15 – Bygg, humlar og vélmenni Margrét Arnardóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs Ölgerðarinnar. Á síðustu hundrað árum hefur Ölgerðin þróast og breyst í takt við tímann. Gríðarlegar tækniframfarir hafa aukið afköst, skapað tækifæri til vöruþróunar og bætt gæði framleiðslunnar. Um þessar mundir er þróun í framleiðslutækni hraðari en nokkru sinni fyrr og róbótar gegna sífellt stærra hlutverki hjá drykkjarvöruframleiðendum heimsins. Farið verður yfir þróunina hingað til og sýnt það nýjasta úr heimi drykkjaframleiðslu.

Kristofer-cv[1]9.15 - 9.30 – Sendingar með drónum Kristófer Már Maronsson, rekstrarstjóri AHA. AHA kynnti nýverið nýja sendingatækni þar sem drónar koma við sögu. Í þessum fyrirlestri verður farið í gegnum hvernig drónar munu koma við sögu í sendingatækni í framtíðinni og hvaða áhrif það getur haft á samfélagið.