Fréttasafn



23. mar. 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ráðstefna um þekkingu og færni innan matvælagreina

Samstarfsvettvangur um Matvælalandið Ísland stendur fyrir ráðstefnu á Hótel Sögu fimmtudaginn 6. apríl næstkomandi þar sem fjallað verður um þekkingu og færni innan matvælagreina. Ráðstefnan hefst með hádegishressingu kl. 11.30 sem meistarakokkar Grillsins sjá um. Ráðstefnunni lýkur kl. 16.00. Aðgangur er ókeypis en þátttakendur eru beðnir að skrá sig. Kynnir og ráðstefnustjóri er Pétur H. Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis.

Þetta er í fimmta sinn sem ráðstefna af þessu tagi er haldin en að samstarfsvettvangnum standa Bændasamtök Íslands, Háskóli Íslands, Íslandsstofa, Matís, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og fyrirtæki innan viðkomandi samtaka. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið á einnig fulltrúa í hópnum.

Dagskrá  

11.30     Hádegishressing í samvinnu við meistarakokka Grillsins

12.00    Setning og afhending verðlauna Ecotrophelia Ísland. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra

Tæknin byltir matvælaiðnaði - Hörður Kristinsson, rannsókna- og nýsköpunarstjóri Matís

Nýjar aðferðir við miðlun fræðslu til starfsmanna 

  • Þjálfun í þenslu – hvernig næ ég til starfsmanna? – Hlíf Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Securitas·        
  • Nýjar leiðir við þjálfun og miðlun - Hróbjartur Árnason, lektor við Menntavísindasvið HÍ
  • Vinnustaðanám og fræðsla Icelandair hótela - Erla Ósk Ásgeirsdóttir forstöðumaður starfsmanna- og gæðasviðs Icelandair hótela
  • Menntanet sjávarútvegsins – Hallveig Ólafsdóttir, hagfræðingur SFS

Reynslusögur úr fyrirtækjum

  • Gæði, öryggi og arðsemi í framleiðslu – Bára Eyfjörð Heimisdóttir, gæðastjóri Norðlenska
  • Hverjir kaupa fiskinn okkar, erum við á réttri leið? Klemenz Sæmundsson, kennari og Ásdís Vilborg Pálsdóttir, verkefnastjóri markaðssviðs Fisktækniskóla Íslands  
  • Starfsþjálfunaráætlun – Aðalheiður Héðinsdóttir, stjórnarformaður Kaffitárs
  • Ráðgjöf til bænda – Nýjar áskoranir í breyttu umhverfi – Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins  

Pallborðsumræður með þátttöku ungs fólks úr ýmsum greinum.

  • Lilja Rut Traustadóttir, gæðastjóri Gæðabaksturs
  • Viktor Örn Andrésson, matreiðslumeistari, 3. sæti í Bocuse d´or 2017
  • Einar Freyr Elínarson, formaður Samtaka ungra bænda og stjórnarmaður í Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
  • Eyrún Sif Skúladóttir, ráðgjafi hjá Wise
  • Anna Fríða Gísladóttir, markaðsstjóri Dómínós

16:00    Ráðstefnuslit