Fréttasafn



19. maí 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Fjögur sprotafyrirtæki fá viðurkenningar Vaxtarsprotans

Viðurkenningar Vaxtarsprotans verða afhentar næstkomandi þriðjudaga 23. maí kl. 15.00 á kaffihúsinu Flóran, Grasagarðinum í Laugardal. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri  sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingastarfi þessara fyrirtækja.

Dagskrá 

Ljúfir nóntónar og síðdegishressing

Greinagerð dómnefndar og afhending viðurkenninga 

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhendir viðurkenningar og Vaxtarsprota ársins 2017

Veittar eru viðurkenningar til fjögurra sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslega vöxt á síðasta ári:

  • Kerecis og TeqHire sem veltu á bilinu 10-100 milljónir
  • Valka og Kvikna sem veltu á bilinu 100-1.000 milljónir

Auk þess verður veitt sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækis sem náð hefur þeim áfanga á síðasta ári að velta meira en einum milljarði króna og tekur þar með sæti í úrvalsdeild íslenskra hátæknifyrirtækja.

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt milli áranna 2015 og 2016 auk þess að uppfylla önnur viðmið dómnefndar hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip og verðlaunaskjöld til eignar.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknamiðstöðvar Íslands.