Fréttasafn



15. okt. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Formaður SI ræddi um íbúðamarkaðinn

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, tók þátt í umræðum um íbúðamarkaðinn á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar á laugardaginn í Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Með Guðrúnu í pallborðsumræðum voru Henný Hinz, Heiða Björg Hilmisdóttir og Logi Einarsson.

Guðrún ræddi meðal annars um að upp á vantaði samræmi á milli sveitarfélaga og ríkis þegar horft væri til þess hvar þörf væri á frekari íbúðauppbyggingu. Þá nefndi hún að lóðaskortur á höfuðborgarsvæðinu stæði meðal annars í vegi fyrir frekari uppbyggingu. 

Á Facebook síðu Samfylkingarinnar er hægt að nálgast fleiri myndir.

Samfylkingin-fundur-13-10-2018