Fréttasafn



12. okt. 2017 Almennar fréttir

Forystufólk flokkanna á fundi SI í Kaldalóni í Hörpu

Samtök iðnaðarins funda með forystufólki stjórnmálaflokkanna í Kaldalóni í Hörpu, þriðjudaginn næstkomandi 17. október kl. 8.30-10.00. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Boðið er upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00. Hér er hægt að skrá sig á fundinn. 

Samtök iðnaðarins vilja leggja sitt af mörkum til umræðunnar í aðdraganda kosninga og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru fyrir samkeppnishæfni íslensks iðnaðar. Málefnin verða til umræðu á opnum fundi með forystufólki stjórnmálaflokkanna næstkomandi þriðjudag. Verðmætasköpun sem byggir á öflugu, fjölbreyttu og samkeppnishæfu atvinnulífi er forsenda góðra lífskjara. 

Hér er hægt að lesa nánar um málefnin fjögur, starfsumhverfi, innviðir, menntun og nýsköpun, sem lögð eru fram í umræðuna undir yfirskriftinni Kjósum betra líf.

Samtök iðnaðarins, sem hreyfiafl í íslensku samfélagi, vilja vinna með stjórnvöldum að umbótum til hagsbótafyrir iðnaðinn, atvinnulífið og almenning í landinu. Miklu máli skiptir að ákvarðanir nýrra stjórnvalda leiði tilumbóta á Íslandi, bæði fyrir fólk og fyrirtæki. Samkeppnishæft og stöðugt starfsumhverfi, öflugir innviðir, menntun og nýsköpun eru grunnur fyrir framþróun lífskjara hér á landi. Með árangri á þessum sviðum má áfram skapa Íslandi sæti í fremstu röð þeirra landa þar sem best er að búa.

Dagskrá

  • Ávarp og setning fundarins – Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Samkeppnishæfni íslensks iðnaðar – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Forystufólk flokkanna í pallborði – Umræðum stýrir framkvæmdastjóri SI
  • Framsóknarflokkur Lilja Dögg Alfreðsdóttir
  • Sjálfstæðisflokkur Sigríður Á. Andersen
  • VG Katrín Jakobsdóttir
  • Miðflokkurinn Bergþór Ólason
  • Viðreisn Hanna Katrín Friðriksson
  • Björt framtíð Björt Ólafsdóttir
  • Píratar Helgi Hrafn Gunnarsson
  • Samfylking Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir
  • Flokkur fólksins Ólafur Ísleifsson

Stjornmalafolk

Auglysing-loka