Fréttasafn



17. jan. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Framkvæmdir helstu opinberra aðila kynntar á Útboðsþingi SI

Útboðþing SI fer fram föstudaginn 26. janúar næstkomandi kl. 13-17 á Grand Hótel Reykjavík. Á þinginu verða kynntar fyrirhugaðar framkvæmdir helstu opinberra framkvæmdaaðila. Fundarstjóri er Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI. Hér er hægt að skrá sig á þingið. Að þingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar. 

Dagskrá

  • Setning - Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Reykjavíkurborg - Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
  • Veitur - Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri
  • Landsvirkjun - Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
  • Landsvirkjun - Guðmundur Björnsson, deildarstjóri tæknideildar orkusviðs
  • Kópavogsbær - Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
  • Landsnet - Nils Gústafsson, framkvæmdastjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs
  • Orka náttúrunnar - Þórður Ásmundsson, forstöðumaður tækniþróunar
  • Faxaflóahafnir - Gísli Gíslason, hafnarstjóri
  • ISAVIA - Sævar Garðarsson, deildarstjóri eignaumsýslu
  • Vegagerðin - Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
  • Framkvæmdasýsla ríkisins - Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri


Auglysing_final