Fréttasafn



24. sep. 2018 Almennar fréttir Menntun

Fundur um nýja menntastefnu SI

Mætum færni framtíðarinnar er yfirskrift opins fundar sem Samtök iðnaðarins standa fyrir í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 4. október næstkomandi kl. 12.00-13.30 um nýja menntastefnu samtakanna. Á fundinum verður farið yfir helstu áskoranir sem við stöndum frammi fyrir til að skapa menntakerfi fyrir nýjar kynslóðir sem styður við velmegun og samkeppnishæfni þjóðarbúsins. Kynntar verða tillögur að umbótum sem miða að því að menntun mæti þörfum atvinnulífs framtíðarinnar þar sem krafist verður annarrar færni en nú þekkist. Fundarstjóri er Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, sviðsstjóri mennta- og mannauðsmála hjá SI. 

Dagskrá

  • Atvinnulífið og menntun - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Ný menntastefna SI - Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá SI, og Vilhjálmur Hilmarsson, sérfræðingur í greiningum hjá SI
  • Færni framtíðarinnar - Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, og Guðmundur Hafsteinsson, yfirmaður vöruþróunar á Google Assistant
  • Pallborðsumræður - Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Karl Frímannsson, fræðslustjóri Akureyrarbæjar.

Boðið verður upp á léttan hádegisverð.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.


Menntastefnufundur-auglysing