Fréttasafn



25. apr. 2016 Almennar fréttir Mannvirki

Hannes Frímann Sigurðsson ráðinn verkefnastjóri við Byggingavettvang

Hannes Frímann Sigurðsson hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri við Byggingavettvang, BVV, sem er samstarfsvettvangur Samtaka iðnaðarins, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Mannvirkjastofnunar, Íbúðalánasjóðs, þriggja ráðuneyta, menntastofnana,  nokkurra fyrirtækja og aðila sem starfa á sviðum sem tengjast byggingarstarfsemi með einhverjum hætti. Hannes Frímann hefur frá árinu 2012 verkefnastýrt úrvinnslu þróunarverkefna hjá Hömlum sem er dótturfélag Landsbankans. Hann starfaði áður sem verkefnastjóri hjá fasteignafélaginu Reginn. Hannes Frímann hefur þegar hafið störf.

Tilgangur BVV er að efla innviði og auka samkeppnishæfni innan byggingageirans með virðisauka fyrir þau fyrirtæki sem við hann starfa, efla samtal innan geirans um hagsmunamál hans og stuðla að faglegri umræðu. Greind verða tækifæri byggingaiðnaðarins til að auka framleiðni, auka skilvirkni og nýsköpun á þessu sviði og stuðla að faglegri mannvirkjagerð meðal annars með áherslu á eflingu nýsköpunar, tækniþekkingar rannsókna og þróun.  Þá er ætlunin að vettvangurinn stuðli að framþróun innan byggingageirans, taki saman og miðli upplýsingum um geirann og stuðli að víðfemara framboði þjónustu, menntunar og þekkingar.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hafa staðfest að verkefnið „Vandað, hagkvæmt, hratt“ verði eitt af fyrstu verkefnum BVV.  

Stofnaðilar binda miklar vonir við að BVV verði hreyfiafl fyrir byggingargeirann í heild, hvort sem litið er til undirbúnings, framkvæmda, eftirfylgni eða framþróunar í geiranum.