Fréttasafn



11. maí 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Heimsókn í Samverk á Hellu

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, heimsótti glerverksmiðjuna Samverk á Hellu í vikunni og hitti þar Örn Þór Alfreðsson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. 

Samverk skipti um eigendur á síðasta ári þegar Lyf og heilsa keypti fyrirtækið. Hjá Samverk starfa 42 og er verkefnastaða fyrirtækisins góð. Guðrún fékk meðal annars að heyra um framtíðarsýn nýrra eigenda sem ætla sér að efla enn frekar reksturinn á komandi árum. Það kom fram í samtölum að hjá Samverk finna stjórnendur fyrir skorti á iðnmenntuðu starfsfólki.