Fréttasafn



30. jún. 2017 Almennar fréttir

Helstu atriði sem máli skipta fyrir íslensk fyrirtæki varðandi Brexit

Fyrir rúmri viku hófust formlegar viðræður milli Bretlands og Evrópusambandsins um útgöngu Breta úr ESB (Brexit). Miklir hagsmunir eru í húfi fyrir íslenskt atvinnulíf enda er Bretland einn mikilvægasti útflutningsmarkaður Íslendinga með um 12% af heildarútflutningi. Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman greiningu og helstu atriði sem máli skipta fyrir íslensk fyrirtæki í þessu samhengi. 

Óljóst er hvort að samningur Bretlands við ESB um framtíðarsamband ríkjanna muni jafnframt ná til Evrópska efnahagsvæðisins sem hefur veitt Íslandi aðgengi að innri markaði ESB og þar með Bretlandsmarkaði. Ísland gæti þurft að gera nýjan samning við Breta um samskipti ríkjanna til að tryggja gagnkvæma hagsmuni.

Í samantektinni kemur fram að Íslendingar fluttu út vörur til Bretlands árið 2015 fyrir 73 milljarða króna og til landsins fyrir 35 milljarða króna. Þetta er um 12% af öllu útflutningsverðmæti Íslands og 5% af innflutningi til landsins. Útflutt þjónusta var 66 milljarðar króna þetta ár sem var um 11% af heildar þjónustuútflutningi en innflutt þjónusta var um 66 milljarðar króna eða um 18% af heildarinnflutningi.

Á vef SA er hægt að nálgast samantektina.