Fréttasafn



12. apr. 2016 Almennar fréttir Menntun

Hvað viltu læra?

"Ég vil hvetja jafnt foreldra sem ungt fólk sem nú stendur frammi fyrir námsvali að kynna sér allar þær fjölbreyttu starfsgreinar sem kenndar eru hér á landi. Á næstunni fá foreldrar og nemendur í 9. bekk upplýsingar sendar frá Samtökum iðnaðarins sem sýna möguleika sem bjóðast." Guðrún Hafsteinsdóttir fjallar um tækifærin sem felast í iðnnámi í Fréttablaðinu í dag.

Nú um stundir standa þúsundir ungmenna frammi fyrir því að velja sér námsleið að loknu grunnskólanámi. Með þeirri ákvörðun eru mörkuð skref í átt að framtíðarstarfinu. Sjaldan eða aldrei hafa möguleikar ungs fólks til menntunar verið jafn miklir og í dag. Tækifærin liggja víða. Í langan tíma hefur straumurinn legið í bóknám, það er hin hefðbundna leið til stúdentsprófs. Mig langar að vekja athygli þína lesandi góður á því að hægt er að taka stúdentspróf en ná sér á sama tíma í starfsréttindi sem eru alþjóðleg og opna möguleika til spennandi og skemmtilegra starfa. Í dag er hægur vandi að flétta saman iðnnámi og stúdentsprófi á sama tíma. Ímyndið ykkur hversu mikið forskot sá einstaklingur hefur sem kemur út úr framhaldsskóla tvítugur með bæði stúdentspróf og iðnmenntun í handraðanum. Atvinnumöguleikar þess einstaklings aukast til mikilla muna. Atvinnurekendur hafa tekið höndum saman um eflingu vinnustaðanáms og hafa nú tæplega 200 fyrirtæki innan Samtaka iðnaðarins staðfest sáttmála þess efnis að auðvelda á ungu fólki að komast á samning.

Það eru gríðarlega spennandi hlutir að gerast í atvinnulífinu nú um stundir. Mikil nýsköpun og gróska. Tækninni fleygir fram á öllum sviðum sem gerir það að verkum að eðli margra starfa í iðnaði hafa gjörbreyst. Atvinnulífið þarf á ungu og öflugu fólki að halda. Við þurfum að fá hæfileikaríka einstaklinga í okkar raðir sem geta sameinað hugvit sitt og verkvit. Þannig manneskju eru allir vegir færir.  Við leyfum okkur að fullyrða að fólk sem stendur sig vel í iðnnámi fái starf að loknu námi og það sem meira er, það mun fá góð og vel launuð störf.

Ég vil hvetja jafnt foreldra sem ungt fólk sem nú stendur frammi fyrir námsvali að kynna sér allar þær fjölbreyttu starfsgreinar sem kenndar eru hér á landi. Á næstunni fá foreldrar og nemendur í 9. bekk upplýsingar sendar frá Samtökum iðnaðarins sem sýna möguleika sem bjóðast. Atvinnulífið mun taka vel á móti ungu fólki sem velur sér iðngrein. 

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins
Birt í Fréttablaðinu 12.4.2016