Kynningarfundur um fyrirhugaðar breytingar á mannvirkjalögum
Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundi um fyrirhugaðar breytingar á mannvirkjalögum næstkomandi þriðjudag 22. ágúst kl. 8.30 í Húsi atvinnulífsins. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur unnið að breytingum á mannvirkjalögum sem gert er ráð fyrir að verði lagðar fram á Alþingi í haust og Samtök iðnaðarins hafa fengið til umsagnar. Á fundinum mun Hafsteinn Pálsson, verkfræðingur hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, kynna tillögurnar.
Breytingarnar byggja á tillögum starfshóps sem var skipaður með það að markmiði að lækka byggingarkostnað og einfalda stjórnsýslu.