Fréttasafn



10. jan. 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Orka og umhverfi

Lean Green - straumlínustjórnun umhverfismála

Manino og Samtök iðnaðarins efna til ráðstefnu um straumlínustjórnun og umhverfismál mánudaginn 23. janúar kl. 8.30-12.30 í Háskólanum í Reykjavík. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Hvað eiga umhverfisstjórnun og straumlínustjórnun sameiginlegt?“ Í tengslum við ráðstefnuna verður haldin vinnustofa þar sem farið er ofan í saumana á því hvernig tengja má umhverfisstjórnun og straumlínustjórnun saman í fyrirtækjum og stofnunum og hvaða ávinningi má reikna með.

Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru:

  • Bryndís Skúladóttir, Samtökum iðnaðarins, fundastjóri
  • Kelly Singer, Lean Green Institute
  • Svanborg Guðjónsdóttir, University College of Northern Denmark (UCN)
  • Búi Bjarmar Aðalsteinsson, BSF Production
  • Magnús Þór Ásmundsson, Alcoa
  • Hrönn Hrafnsdóttir, Reykjavíkurborg
  • Pétur Arason, Manino


Skráning á ráðstefnuna er á vefsíðunni: http://www.manino.is/

Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá lean@manino.is eða bryndis@si.is.