Fréttasafn



9. apr. 2018 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Líklegt að tafir verði á innleiðingu persónuverndarlöggjafar

Í sameiginlegri umsögn Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka verslunar og þjónustu, Samorku, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Viðskiptaráðs Íslands voru gerðar alvarlegar athugasemdir við drög að frumvarpi til nýrra persónuverndarlaga.

Fulltrúar samtakanna fylgdu umsögninni eftir með fundi með Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, og embættismönnum. Á þeim fundi kom fram vilji til að koma til móts við einhverjar athugasemdir samtakanna, en hvergi nærri allar.

Þá er mjög líklegt að innleiðingu á löggjöfinni verði ekki lokið fyrir 25. maí þegar hún tekur gildi í Evrópusambandinu. Samtökin hafa varað við því að hætta gæti verið á því að einhver erlend fyrirtæki væru tregari til að ganga til samninga við íslensk fyrirtæki þar sem reynir á vernd persónuupplýsinga. Til þess að koma í veg fyrir það gæti þurft að útskýra fyrir þeim að persónuupplýsingar séu nægjanlega verndaðar hér þótt reglugerð Evrópusambandsins hafi ekki enn verið innleidd.

Samtökin lögðu áherslu á það á fundinum að ráðuneytið myndi setja upplýsingar um stöðu innleiðingarinnar á íslensku og ensku á vef sinn fyrir íslensk fyrirtæki og viðsemjendur þeirra.

Nánar á vef SA.