Fréttasafn



1. mar. 2017 Almennar fréttir

Meðalverð á áli hækkar vegna vaxandi eftirspurnar

Í Morgunblaðinu í dag er sagt frá því að meðalverð á áli hafi hækkað en það var 1.600 dollarar í fyrra en er núna rétt um 1.900 dollarar. Agnes Bragadóttir, blaðamaður, hefur eftir Pétri Blöndal, framkvæmdastjóra Samáls, að ljóst væri að til lengri tíma væri æskilegt að jafnvægi væri í gengi krónunnar, en líkt og fram kom í Morgunblaðinu á laugardag hefur gengisvísitalan ekki verið lægri síðan í júlí 2008. Bandaríkjadalur var skráður á tæpar 107 krónur í gær. 

Í fréttinni segir ennfremur:„Sveiflur eru ekki góðar og vissulega finna álverin fyrir hækkun á launakostnaði og sterkara gengi. Það hafa verið gríðarlegar hækkanir á launakostnaði undanfarið samfara því að krónan er að styrkjast, þannig að það má segja að þetta komi með tvöföldum þunga á álverin,“ sagði Pétur.

„Ástæðuna fyrir hækkandi álverði má m.a. rekja til þess að eftirspurn jókst um 5,3% í heiminum í fyrra. Eftirspurn heldur því áfram að vaxa ört. Þar munar mest um vaxandi notkun áls í bílaiðnaði, en með því eru bílaframleiðendur að koma til móts við kröfur stjórnvalda um sparneytnari farartæki og minni losun gróðurhúsalofttegunda. Ál er einnig lykilefni í rafbílum vegna léttleikans, sem vegur á móti þungum rafhlöðum og eykur vegalengdina sem þeir komast á hleðslunni,“ sagði Pétur. 

Pétur segir að ef til vill spili líka inn í að eitt af síðustu verkum fráfarandi Bandaríkjastjórnar hafi verið að senda kæru á hendur Kínverjum fyrir ólögmætar niðurgreiðslur á aðföngum til áliðnaðar. Þegar hafi Evrópusambandið, Rússland, Japan og Kanada tekið undir það. Þessi ríki muni ræða saman um lausn vandans á þessu ári. Það kunni að hafa áhrif á væntingar á markaðnum og spila inn í hækkun álverðs.

Morgunblaðið, 1. mars 2017.