Fréttasafn



16. feb. 2018 Almennar fréttir Menntun

Menntadagur atvinnulífsins í máli og myndum

Hvað verður um starfið þitt? var yfirskrift Menntadags atvinnulífsins sem haldinn var í Hörpu í vikunni. Þetta var í fimmta sinn sem dagurinn var haldinn og að þessu sinni var hann tileinkaður hlutverki skólakerfis og atvinnulífs við að búa fólk undir þær miklu tæknibreytingar sem nú standa yfir. 

Upptökur frá dagskránni eru aðgengilegar í Sjónvarpi atvinnulífsins sem hægt er að nálgast á vef SA. Einnig er hægt að skoða ljósmyndir frá viðburðinum á Facebook. Um 250 manns úr atvinnulífi, stjórnmálum og menntakerfinu tóku þátt í líflegri og upplýsandi dagskrá. Meðal þeirra voru Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Árni Sigurjónsson, varaformaður SI, sem sjást á myndinni hér fyrir ofan.

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt og var Iceland Travel valið menntafyrirtæki ársins og Landsnet menntasproti ársins. Að lokinni sameiginlegri dagskrá voru haldnar málstofur þar sem kafað var dýpra í efni dagsins. 

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins. Hjá aðildarfyrirtækjum samtakanna starfa um 70% launafólks á almennum vinnumarkaði sem eru rúmlega 100 þúsund manns.