Fréttasafn



5. des. 2017 Almennar fréttir

Metnaðarfull áform í stjórnarsáttmálanum

„Stjórnarsáttmálinn lofar góðu og þarna eru góð fyrirheit. Ég fagna áherslu á uppbyggingu innviða, á nýsköpun og menntun. Þarna er verið að fjárfesta til framtíðar og samfélagið búið undir breytingar samhliða fjórðu iðnbyltingunni og tæknibreytingum.“ Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í viðtali í morgunþætti Rásar 1. 

Björn Þór Sigbjörnsson, þáttastjórnandi, ræddi við Sigurð um innviðauppbyggingu sem var eitt af stóru kosningamálunum og nýjan stjórnarsáttmála. Björn Þór sagði Samtök iðnaðarins hafa lengi bent á mikilvægi þess að hér þurfi að styrkja innviði, að hér þurfi að ráðast í nýframkvæmdir og viðhald. Hann spurði Sigurð hvort honum fyndist þau áform sem fram koma í stjórnarsáttmálanum metnaðarfull? „Þau eru það og það er nú þannig að Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu samtök atvinnurekenda á Íslandi og við erum hreyfiafl í samfélaginu. Við viljum beita okkur með þeim hætti að greina hluti, finna lausnir, leggja þær til í umræðunni til að hafa jákvæð áhrif og eiga gott samtal við stjórnvöld til þess að ná fram umbótum í íslensku samfélagi. Ekki bara fyrir atvinnulífið heldur fyrir okkur öll. Þess vegna erum við að leggja áherslu á innviðina meðal annars því það snýr að samkeppnishæfni landsins sem er svo mikilvægt að sé í lagi. Það hefur víðtæk áhrif á allt saman og almennt á lífsgæði í landinu.“

Sigurður segir jafnframt í viðtalinu að eitt sé að sjá orð á blaði. „En nú auðvitað hlakka ég til þess að sjá þetta verða að veruleika á næstu árum. Við erum reiðubúin í þau uppbyggilegu samskipti sem að ný ríkisstjórn boðar. Við viljum starfa með stjórnvöldum og samfélaginu að því að ná fram umbótum í landinu.“

Hér er hægt að hlusta á viðtalið á Rás 1 í heild sinni frá mínútu 0:38:00.