Fréttasafn



8. nóv. 2017 Almennar fréttir Mannvirki

Mikill áhugi á Verk og vit

Undirbúningur fyrir stórsýninguna Verk og vit sem fer fram 8.-11. mars í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal á næsta ári gengur vel en nú þegar eru 80 sýnendur skráðir og um 80% sýningarsvæðisins selt þrátt fyrir að enn séu um fjórir mánuðir í sýninguna.

Samtök iðnaðarins eru meðal samstarfsaðila sýningarinnar en Verk og vit er ætluð framleiðendum og innflytjendum sem koma að bygginga- og mannvirkjagerð á ýmsum stigum, s.s. sveitarfélögum, verktökum, iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, hönnuðum, menntastofnunum og ráðgjöfum.

„Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á sýningunni eins og sjá má á því að þegar eru um 80% sýningarsvæðisins seld. Það er mikill uppgangur í byggingariðnaði og mannvirkjagerð og margar framkvæmdir á teikniborðinu. Verk og vit hefur sýnt og sannað að hún er góður vettvangur fyrir aðila til að hittast, kynna vörur og þjónustu ásamt því að ræða málin, sem meðal annars skýrir þessa góðu þátttöku,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar.

Framkvæmdaraðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru ásamt SI, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, BYKO og Landsbankinn.