Fréttasafn



5. okt. 2018 Almennar fréttir Menntun

Nauðsynlegt að efla iðnnám

Í fréttum Stöðvar 2 í gær var rætt við Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur, sviðsstjóra mennta- og mannauðsmála hjá Samtökum iðnaðarins, um nýja menntastefnu samtakanna þar sem lögð er áhersla á nauðsyn þess að efla iðnnám hér á landi. Samtökin benda á að íslenskir framhaldsskólanemar velji mun síður iðn- og starfsnám en jafnaldrar þeirra í öðrum löndum OECD. Frammistaða í raungreinum hafi farið versnandi á síðustu árum og brottfall nemenda sé afar hátt.

Bæta þarf ímynd iðnnáms hér á landi

Ingibjörg Ösp segir að bæta þurfi ímynd iðnnáms hér á landi og segir hún að ungt fólk sé upp til hópa með ranghugmyndir um eðli og fjölbreytni námsins. Hún segir mikilvægt að byrja strax í grunnskólum til að taka á vandanum. „Við sjáum vísbendingar um að við séum að sigla í rétta átt en þetta er ekki að gerast nógu hratt og við þurfum að gera enn betur. Þetta snýst fyrst og fremst um að við skoðum betur rætur vandans. Skoðum hvernig við getum styrkt nemendur okkar betur og upplýst betur strax í grunnskólanum þannig að við styðjum þau í rétta ákvarðanatöku þegar kemur að því að velja framhaldsnám.“ 

Hægt að velja um 100 námsleiðir

Í fréttinni segir Ingibjörg að ákveðnir fordómar séu ríkjandi hér á landi í garð iðnnáms og að ungt fólk sé ekki alltaf meðvitað um þann fjölda námsgreina sem er í boði. „Það eru um 100 leiðir sem að nemendur geta farið þegar kemur að starfsnámi og þar af eru sextíu sem tengjast iðnnámi. Þegar ungt fólk í grunnskólum í dag er spurt um hvaða leiðir séu í boði þá eru þau kannski að nefna fjórar til sex greinar og hafa þá jafnvel hugmyndir um að mörgum þeirra fylgi kuldi, óhreinindi, hávaði og annað sem á ekki við rök að styðjast.“ 

Stod-2-04-09-2018

Á Vísi er hægt að horfa á fréttina í heild sinni.