Fréttasafn



7. des. 2016 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Áhyggjur af styrkingu krónunnar

Í Markaðnum sem fylgir Fréttablaðinu í dag er rætt við Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóra SI, sem segir nauðsynlegt að vinna á móti styrkingu krónunnar og Seðlabankinn þurfi að lækka vexti og kaupa gjaldeyri. Þá sé einnig nauðsynlegt að lífeyrissjóðir auki erlendar fjárfestingar. Hann hefur áhyggjur af því að hröð styrking krónunnar skemmi tækifæri til uppbyggingar til lengri tíma í greinum sem skapa hálaunastörf.

Í fréttinni segir Almar þessa þróun varasama fyrir hag þjóðarbúsins til lengri tíma. „Þær greinar sem geta síst brugðist við hraðri styrkingu eru fyrstar til að leita annarra leiða. Það er því hætta á því að ef verið er að búa til nýtt starf eða setja upp nýja þróunareiningu verði það gert erlendis.“ Almar segir þetta eiga við um greinar sem byggja á þekkingu og menntun og borga hærri laun. „Þetta geta verið fyrirtæki á sviði lækningatækja, hugbúnaðarfyrirtæki og verkfræðistofur. Þetta er miklu fjölbreyttari flóra fyrirtækja en fólk gerir sér almennt grein fyrir.“ Hann segir þetta greinar sem byggi á mannauði og þekkingu og séu mikilvægar í bland við fyrirtæki sem séu með aðra samsetningu vinnuafls. „Við þurfum hvort tveggja og nú erum við á skeiði þar sem er hætta á að við töpum ávinningi af tæplega áratugar uppbyggingu í slíkum iðnaði úr landinu.“ 

Hann segir jafnframt að í ljósi þessarar styrkingar sé áhugavert að sjá að íslenskir langtímafjárfestar haldi að sér höndum með erlendar fjárfestingar. „Það hafa myndast góð skilyrði fyrir þá sem þurfa að dreifa áhættu sinni erlendis, en þau tækifæri hafa ekki verið nægjanlega nýtt. Það finnst okkur miður, því það myndi styðja við það að við höfum hér farsælla umhverfi til langtímauppbyggingar margs konar útflutningsgreina sem við þurfum til lengri tíma horft. Ferðaþjónustan hefur að undanförnu skapað vaxandi gjaldeyristekjur og staða þjóðarbúsins gagnvart útlöndum hefur aldrei verið sterkari.“ 

Almar segir að við þessar aðstæður þurfi að grípa til einhverra aðgerða. „Við fögnum því auðvitað að ferðaþjónusta byggist upp sem sterk atvinnugrein. Ef krónan heldur áfram að styrkjast eins og verið hefur, þá er það alvarlegt mál.“ Hann bendir á að ástæður séu til að hafa áhyggjur af því að of hröð styrking muni á endanum bitna á ferðaþjónustunni sjálfri. Hann leggur áherslu á þrennt sem þurfi að nýta nú til að vinna á móti þróuninni. „Við teljum að Seðlabankinn þurfi að lækka vexti og minnka vaxtamun milli okkar og annarra. Bankinn þarf einnig að vera virkur á markaði og kaupa gjaldeyri til að viðhalda jafnvægi. Í þriðja lagi þurfa lífeyrissjóðir að nýta þessa sterku stöðu til að nýta þær heimildir sem þeir hafa til erlendra fjárfestinga.“ Hann bætir því við að honum finnist vel koma til greina við þessar kringumstæður að sjóðunum sé sett gólf fremur en þak eins og verið hefur. „Það þarf að myndast útflæði á móti innflæðinu.“ Almar segir að afnám hafta við þessar kringumstæður sé skynsamlegt með þeim fyrirvara að varúðar sé gætt varðandi innstreymi vegna vaxtamunar. „Staðan núna er sú að það virðist vera óhætt að stíga stærri skref.“ 

Markaðurinn, 7. desember 2016.