Fréttasafn



9. apr. 2018 Almennar fréttir Menntun

Nýnemum í starfsnámi fer fækkandi

Nýnemum á framhaldsskólastigi fer fækkandi og sífellt fleiri nýnemar kjósa að hefja framhaldsskólanám í bóknámi fremur en starfsnámi. Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta sinn tölur um nýnema á framhaldsskólastigi á árunum 1997-2016. Þar kemur fram að á tímabilinu 1997-2016 voru nýnemar á framhaldsskólastigi fæstir árið 2002 eða 4.268. Flestir voru 2006 eða 5.429. Fjöldi nýnema helst í hendur við fjölda 16 ára íbúa en haustið 2006 hóf fjölmennur árgangur 16 ára landsmanna nám í framhaldsskóla. Haustið 2016 voru nýnemar á framhaldsskólastigi 4.595 talsins eða 834 færri en þegar mest var 10 árum áður.

Aðeins 16% nýnema sem velja starfsnám - 64% eru piltar

Á fyrri hluta tímabilsins 1997-2016 hóf um fjórðungur nýnema á framhaldsskólastigi nám á starfsnámsbrautum. Hlutfallið hefur farið lækkandi á undanförnum árum og árið 2016 völdu rúmlega 16% nýnema starfsnám. Hluti skýringarinnar á þessari fækkun er sú að sumir nemendur í starfsnámi hefja framhaldsskólanám með námi á bóknámsbraut, t.d. almennri braut, áður en þeir hefja starfsnám og teljast því með nýnemum í bóknámi. 

Piltar eru í meirihluta meðal nýnema í starfsnámi en stúlkur voru stærri hluti nýnema í bóknámi. Munurinn á milli kynjanna í bóknámi minnkaði þó á tímabilinu. Árið 1997 voru stúlkur rúmlega 57% nýnema í bóknámi en tæplega 53% árið 2016. Piltar voru tæplega 61% nýnema í starfsnámi árið 1997 og rúm 64% árið 2016.

Á vef Hagstofunnar eru frekari upplýsingar.