Fréttasafn



26. jan. 2016 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Nýr kjarasamningur

Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands skrifuðu undir nýjan kjarasamning fimmtudaginn 21. janúar. Samningurinn fer nú til kynningar hjá samningsaðilum og atkvæðagreiðslu og skulu niðurstöður liggja fyrir eigi síðar en 26. febrúar. Samningurinn gildir til loka árs 2018 og byggir á svokölluðu Rammasamkomulagi frá 27. október sl. og bókun með kjarasamningum SA og aðildarfélaga ASÍ um jöfnun lífeyrisréttinda milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins.
Sjá nánar á vef Samtaka atvinnulífsins

Samtök iðnaðarins bjóða félagsmönnum sínum til kynningarfundar um stöðu kjaramála þriðjudaginn 2. febrúar kl. 16.00 – 17.30 á Grand Hótel Reykjavík. Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA fer yfir nýjan kjarasamning og situr fyrir svörum.

SKRÁNING