Fréttasafn



14. ágú. 2017 Almennar fréttir Nýsköpun

Opið fyrir tilnefningar í bókina Startup Guide Reykjavik

Icelandic Startups er í samstarfi við alþjóðlega útgáfufyrirtækið Startup Guide við að ramma inn frumkvöðlaumhverfið á höfuðborgarsvæðinu. Gefa á út bókina Startup Guide Reykjavik í nóvember næstkomandi í prentuðu og rafrænu formi ásamt appi. Opnað hefur verið fyrir tilnefningar og er hægt að tilnefna fyrirtæki, viðskiptahraða og frumkvöðla sem gætu átt erindi í bókina. Hægt er að tilnefna fram til 20. ágúst.

Hér er hægt að senda inn tilnefningar.