Óskað eftir tilnefningum fyrir Menntaverðlaun atvinnulífsins
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 2. febrúar á næsta ári. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála fyrir 12. desember. Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2017, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið. Verðlaunin verða veitt á Menntadegi atvinnulífsins 2. febrúar en þetta er í fjórða sinn sem dagurinn er haldinn. Kastjósinu er beint að íslenskri máltækni, menntun og fræðslu sem nýtist öllu atvinnulífinu.
Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.
Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:
- að skipulögð fræðsla sé innan fyrirtækisins,
- að stuðlað sé að markvissri menntun og fræðslu,
- að sem flest starfsfólk taki virkan þátt og
- að hvatning til frekari þekkingaröflunar sé til staðar.
Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:
- að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,
- samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.
Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Skila á greinargerð að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja.
Tilnefningar á að senda í tölvupósti á sa@sa.is í síðasta lagi mánudaginn 12. desember. Ekki er tekið við tilnefningum eða gögnum eftir þann tíma.