Ráðstefna um bætta nýtingu lífrænna aukaafurða á Íslandi
Úrgangur í dag – auðlind á morgun er yfirskrift ráðstefnu um bætta nýtingu lífrænna aukaafurða sem haldin verður 24. maí næstkomandi kl. 9-14 á Grand Hótel Reykjavík. Skráning er hafin á ráðstefnuna og er aðgangur ókeypis. Fundarstjóri er Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís.
Ráðstefnan er lokaliður í formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni um Norræna lífhagkerfið (NordBio). Markmið NordBio er að gera Norðurlöndin leiðandi í sjálfbærri framleiðslu og nýtingu lífauðlinda í því skyni að draga úr sóun og efla nýsköpun, grænt atvinnulíf og byggðaþróun. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Bændasamtök Íslands, FENÚR, Landgræðslu ríkisins, Matís, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Sjávarklasann.
Dagskrá
- Ávarp ráðherra umhverfis- og auðlindamála, Björt Ólafsdóttir
Stóra myndin
- Lífhagkerfið: Tækifæri á tímum efnahagslegra umbreytinga, Sigríður Þormóðsdóttir, Innovation Norway
- Græðum við ekki nógu mikið, Róbert Guðfinnsson, athafnamaður
- Lífauðlindir Norðurlandanna, Dr. Daði Már Kristófersson, Háskóli Íslands
Áskoranir
- Aukaafurðir dýra – reglugerðir á mannamáli, Guðrún Lind Rúnarsdóttir, Matvælastofnun
- Skordýr og rófur, Búi Bjarmar Aðalsteinsson
- Játningar skordýrabónda, Gylfi Ólafsson, Víur – Ræktunarfélag um fóðurskordýr
Lausnir og nýsköpun
- Auðlindatorgið – gagnvirk lausn til að skapa verðmæti, Hildur Harðardóttir, Umhverfisstofnun
- Bestun á nýtni lífrænna aukaafurða, ReSource International
- Úr úrgangi í úrvalsvöru, Ágúst Torfi Hauksson, Norðlenska
- Seyra í sókn, Magnús Jóhannsson, Landgræðsla ríkisins
- Fiskeldi – getum við minnkað umhverfisáhrifin? Ragnheiður Þórarinsdóttir, Samrækt
- Er geitin illa nýtt og verðmæt aukaafurð? Framtíð íslensku geitarinnar, Listaháskóli Íslands