Fréttasafn



10. ágú. 2017 Almennar fréttir

Samkeppnishæfnin þverrandi vegna sterks gengis krónunnar

Í umfjöllun Viðskiptablaðsins í dag kemur fram að samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs fari þverrandi vegna þess mikla kostnaðar sem fylgir sterku gengi krónunnar. Í umfjölluninni sem Ásdís Auðunsdóttir, blaðamaður, skrifar er meðal annars rætt við Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem segir að styrking raungengisins sé einfaldlega orðin slík að eitthvað muni láta undan og í þessu tilviki þá sé það samkeppnishæfni þjóðarinnar sem sé undir. „Áhrifanna er farið að gæta í ferðaþjónustunni og iðnaðinum, ekki síst í hugbúnaðargeiranum sem er í auknum mæli farinn að taka vöxt sinn út í öðrum löndum. Þetta er því verulegt áhyggjuefni en vandinn snýr ekki bara að viðskiptavininum sem kaupir íslenskar vörur heldur líka að kostnaðinum sem verður til innanlands. Umræðan snýst alltaf mest um verð íslenskra vara á erlendum mörkuðum en það gleymist að launakostnaður innanlands hefur mest áhrif og hann er mun hærri en í flestum nálægum löndum.“ Halldór Benjamín segir jafnframt að lækkun vaxta sé eðlilegasta leiðin til að létta á krónunni. „Það er tvíþætt ástæða þar að baki en lækkun vaxta bæði dregur úr fjármagnsinnflæði til landsins og eykur útflæði. Ég hef ekki enn séð neinn hrekja þessi rök.“ 

Fyrirtæki í tæknigeiranum leita ódýrari lausna

Í umfjölluninni er hann spurður um áhrifin á íslenska tæknigeirann og segir hann að það sé eins og hljóð og mynd fari ekki saman hér á landi hvað hann varð­ar. „Að öðrum þræði tölum við mikið um að það verði að auka og efla tæknimenntun á Íslandi og það eru allir nokkuð sammála um að það sé ein af þeim stóru breytingum sem þurfi að eiga sér stað í menntakerfinu. En á móti kemur að sökum sterkrar krónu og mikils kostnaðar sjá fyrirtækin eðlilega hag sinn í því að leita ódýrari lausna þannig að tveir gagnstæðir kraftar toga hvor í sína átt. Ef litið er til framleiðni til lengri tíma og þróun samfélagsins þá hlýtur þetta að vera verulegt áhyggjuefni.“

Viðskiptablaðið, 10. ágúst 2017.