Fréttasafn



8. feb. 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Stefnumót framleiðenda, hönnuða og hugmyndafólks

Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð og Samtök iðnaðarins, efna til stefnumóts milli framleiðenda, hönnuða, arkitekta og hugmyndafólks mánudaginn næstkomandi 13. febrúar kl. 9.00 – 15.30 í Hönnunarsafni Íslands undir handleiðslu Birgis Birgissonar hjá Driftwood hönnunarstofu. Frestur til að skrá sig er til kl.17.00 á föstudaginn en sætafjöldi er miðaður við 50 þátttakendur. 

Á síðasta aðalfundi Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda var tekin ákvörðun um að leita leiða til að efla félagið, greinina og tengslanet framleiðenda og hönnuða. Fyrsta skrefið í því er að halda stefnumótun í greininni. Dagurinn verður notaður til að skapa uppbyggilegt samtal milli aðila og samanstendur af fróðlegum erindum og gagnlegum æfingum undir stjórn Birgis. Stjórn félagsins langar að bjóða 1-3 frá hverju aðildarfyrirtæki að taka þátt en um 25 sæti er að ræða fyrir framleiðendur og 25 sæti eru ætluð hönnuðum. Þeir framleiðendur sem vilja taka þátt hafi samband við Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, viðskiptastjóra á framleiðslu- og matvælasviði SI, johanna@si.is. Hönnuðir sem vilja taka þátt skrái sig á vef Hönnunarmiðstöðvar

Myndir frá stefnumótinu eru á Facebook.

Dagskrá

  • 9:00 | Morgunhressing og afhending fundargagna
  • 9:10 | Opnunarávarp | Guðmundur Ásgeirsson, Á. Guðmundsson, formaður Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda
  • 9:20 | Hönnun er nýsköpun | Halla Helgadóttir, Hönnunarmiðstöð Íslands
  • 9:40 | Verkleg æfing - hugrenningatengsl | Birgir Birgisson, Driftwood
  • 9:50 | Sjónarmið innanhússarkitektsins | Íva Rut Viðarsdóttir, innanhússarkitekt
  • 10:00 | Sjónarhorn framleiðanda – hvar liggja tækifærin? | Eyjólfur Eyjólfsson, Axis
  • 10:20 | Kaffihlé
  • 10:40 | Árangur ferðaþjónustuaðila af stefnumótun | Elías Guðmundsson, Fisherman ferðaþjónustufyrirtæki á Suðureyri
  • 11:00 | Verkleg æfing - Orðasnúður, skemmtileg sköpun nýrra viðskiptahugmynda | Birgir Birgisson, Driftwood
  • 11:10 | Virk nýsköpun | Birgir Birgisson, Driftwood
  • 11:20 | Hugmyndavinna – Hvaða spurningum þarf greinin að svara?

•    Hvernig eignast hönnuðir og framleiðendur sameiginlegan vettvang?
•    Hvernig öðlast hönnuðir betri skilning á takmörkum í framleiðslu
•    Hvernig má efla samstarf um smíði frumgerða? 
•    Hvernig er hægt að ná til fleiri viðskiptavina, stækka markhópinn?
•    Hver er íslensk sérstaða í húsgagna- og innréttingaframleiðslu?

  • 12:00 | Hádegismatur
  • 13:00 | Sóknarfæri greinarinnar í samstarfi við hönnuði og hugmyndafólk | Sigríður Heimisdóttir, iðnhönnuður
  • 13:20 | Verkleg æfing - Aðgerðartafla | Birgir Birgsson, Driftwood
  • 14:00 | Kaffihlé
  • 14:20 | Inspired by Iceland, samstarf eykur slagkraft? | Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina, Íslandsstofu
  • 14:40 |Verkleg æfing – Aðgerðartafla, framhald
  • 15:20 | Samantekt | Birgir Birgisson, Driftwood