Fréttasafn



12. okt. 2016 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Stöðugleiki er nauðsynlegur sjálfbærum vexti

Rekstur fyrirtækja og heimila þrífst best við stöðugleika í verðlagi og gengi. Ástæðan er einföld. Allar ákvarðanir um fjárfestingar, skuldsetningu, neyslu og ráðningar verða miklu betri í fyrirsjáanlegu umhverfi án mikilla verðlags- og gengistruflana. En íslenskt efnahagslíf hefur hins vegar löngum verið þjakað af verðbólgu og gengissveiflum sem verulega getur dregið úr samkeppnishæfni landsins. Þessi hagþróun með víxlhækkun launa og verðlags má ekki endurtaka sig. 

Sem betur fer hafa síðustu misseri einkennst af efnahagslegum stöðugleika en í skjóli fjármagnshafta. Lág verðbólga hefur verið ein mikilvægasta uppspretta kaupmáttaraukningar síðustu ára samhliða kröftugum hagvexti og hækkun launa. Þennan stöðugleika er mikilvægt að verja sérstaklega þegar hillir undir afnám fjármagnshafta og gengi krónunnar mun í vaxandi mæli ráðast af þeim kröftum sem móta efnahagsþróun á hverjum tíma. Vegna þessa þarf hagstjórnin að vera öguð og einkennast af ráðdeild. 

Vaxtastig á Íslandi er hátt samanborið við nágrannaríki okkar þrátt fyrir að verðbólga hafi haldist lág að undanförnu. Háir vextir draga verulega úr fjárfestingum fólks og fyrirtækja en lágt fjárfestingastig hefur verið einn helsti veikleiki hagkerfisins síðustu ár. Við búum ekki við samkeppnishæft umhverfi þegar kemur að vöxtum. Ein ástæða hárra vaxta er þessi sögulegi efnahagslegi óstöðugleiki sem einkennt hefur íslenskt efnahagslíf í gegnum tíðina og veldur einfaldlega vaxtaálagi. Efnahagslegur stöðugleiki er þannig ein forsenda lækkandi vaxta. 

Þegar vel árar í efnahagslífinu er hætt við að almenn hagstjórn og áherslur um grundvallaratriðið í ríkisfjármálum og peningamálum verði ekki mikið til umræðu þegar gengið er til kosninga. Líklegra er að á vettvangi stjórnmála sé meira rætt um hvernig eigi að eyða fjármunum eða hvernig beri að skattleggja fólk og fyrirtæki. Þetta er skammsýni. Ráðdeild í ríkisfjármálum er nefnilega samofin stöðugleika sem er aftur forsenda samkeppnishæfni, sjálfbærs hagvaxtar og lækkunar vaxta. 

Það er hagur okkar allra að efnahagslegur stöðugleiki fái veglegan sess í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar því í þannig umhverfi tekst okkur að skapa sem mest verðmæti og tryggja samkeppnishæfni Íslands.

Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.

 Fréttablaðið, 12. október 2016.