Fréttasafn



12. maí 2017 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Vaxtarsprotinn afhentur í ellefta sinn í Grasagarðinum í Laugardal

Viðurkenningarathöfn Vaxtarsprotans fer fram þriðjudaginn 23. maí næstkomandi kl. 15.00 á kaffihúsinu Flóran, Grasagarðinum í Laugardal. 

Dagskrá 

  • Ljúfir nóntónar og síðdegishressing
  • Greinagerð dómnefndar og afhending viðurkenninga
  • Iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhendir viðurkenningar og VAXTARSPROTA ársins 2017

Veittar eru viðurkenningar til fjögurra sprotafyrirtækja sem hafa sýnt mestan hlutfallslega vöxt á síðasta ári:

  • Tveimur fyrirtækjum sem veltu á bilinu 10-100 milljónir
  • Tveimur fyrirtækjum sem veltu á bilinu 100-1.000 milljónir

Auk þess verður veitt sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækis sem náð hefur þeim áfanga á síðasta ári að velta meira en einum milljarði króna og tekur þar með sæti í úrvalsdeild íslenskra hátæknifyrirtækja. Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt milli áranna 2015 og 2016 auk þess að uppfylla önnur viðmið dómnefndar hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip og verðlaunaskjöld til eignar.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknamiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri  sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingastarfi þessara fyrirtækja.

Á síðasta ári var Vaxtarsproti ársins valinn Eimverk og er myndin frá afhendingu viðurkenningarinnar.