Fréttasafn



28. okt. 2016 Iðnaður og hugverk

X Hugvit birtir svör stjórnmálaflokka

X Hugvit hefur gefið út rafrænt tímarit með heitinu Áttavitinn þar sem farið er yfir þau málefni sem sett hafa verið á oddinn í aðdraganda kosninganna. Allir stjórnmálaflokkar fengu sendar spurningar sem snúa að lykilverkefnum herferðar Hugverkaráðs SI fyrir kosningarnar. Forystufólk fimm stjórnmálaflokka hafa þegar svarað og eru svör þeirra birt í tímaritinu. Þeir stjórnmálaflokkar sem hafa þegar svarað spurningunum eru Alþýðufylkingin, Píratar, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkurinn og Viðreisn. Bætt verður við svörum í tímaritið eftir því sem fleiri flokkar svara spurningunum. 

Hér er hægt að nálgast tímaritið: 
http://bit.ly/attavitinn