Iðnþing 2018

Iðnþing 2018 var haldið fyrir fullum sal í Silfurbergi í Hörpu þar sem hátt í 400 manns komu saman fimmtudaginn 8. mars 2018.

_D4M7449

Iðnþing 2018 var haldið fyrir fullum sal í Silfurbergi í Hörpu þar sem hátt í 400 manns komu saman fimmtudaginn 8. mars 2018. „Ísland í fremstu röð – eflum samkeppnishæfnina“ var yfirskrift Iðnþingsins. Samhliða Iðnþingi gáfu Samtök iðnaðarins út ítarlega skýrslu með sama heiti sem fjallar um samkeppnishæfni Íslands og helstu áskoranir. Skýrslan er unnin af starfsmönnum Samtaka iðnaðarins og er í skýrslunni horft til samkeppnishæfni Íslands út frá menntun, nýsköpun, innviðum og starfsumhverfi. Í skýrslunni eru einnig samantektir um stöðu hagkerfisins, umhverfismál og þær tæknibreytingar sem eru framundan. Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni, sem er hátt í 100 síður, eru helstu áskoranir sem þarf að mæta til að efla samkeppnishæfni landsins að mati Samtaka iðnaðarins. 

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast efni þingsins.

Skýrslan Ísland í fremstu röð - eflum samkeppnishæfnina

Hér er hægt að nálgast skýrsluna.

Forsida-skyrslu-med-ramma_1520936941494

Dagskrá Iðnþings 2018

Kl. 13.30 ÁVARP

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI

Kl. 13.45 ÁVARP

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Kl. 14.00 VIRKJUM TÆKIFÆRIN

Gestur Pétursson, forstjóri Elkem á Íslandi

Sesselja Vilhjálmsdóttir, stofnandi og forstjóri Tagplay

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Kl. 14.15 FJÁRFESTING Í DAG ER HAGVÖXTUR Á MORGUN

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra

Ólöf Helgadóttir, rafmagnsverkfræðingur hjá Lotu

Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV

Kl. 14.30 MENNTAKERFIÐ ER EKKI EYLAND

Finnur Oddsson, forstjóri Origo

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Kl. 14.45 LEITIN AÐ STÖÐUGLEIKA

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra

Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns

Kl. 15.00 Áræðni, ný hugsun og djörf framtíðarsýn

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Að þingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar.

Auglysing-med-myndum_1520937474577

Myndir

Á Facebook SI er hægt að skoða myndir frá Iðnþingi. 
_D4M7447
DSC_6435

Bein útsending á mbl.is

Iðnþingið var sent út beint á mbl.is. Hér er hægt að horfa á upptökuna á mbl.is. 

Myndbönd

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast upptökur frá Iðnþinginu.

Ávarp Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI

https://vimeo.com/259286045



Ávarp Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

https://vimeo.com/259285962


Virkjum tækifærin - umræða um nýsköpun

https://vimeo.com/259285900



Fjárfesting í dag er hagvöxtur á morgun - umræða um innviði

https://vimeo.com/259285852

 

Menntakerfið er ekki eyland - umræða um menntun

https://vimeo.com/259285852

 

Leitin að stöðugleikanum - umræða um starfsumhverfi

https://vimeo.com/259282319



Áræðni, ný hugsun og djörf framtíðarsýn - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

https://vimeo.com/259282276

 

Iðnþingi slitið og léttar veitingar

https://vimeo.com/259282239



Iðnþingsblað með Morgunblaðinu

Gefið var út sérblað um Iðnþing 2018 sem fylgdi Morgunblaðinu fimmtudaginn 22. mars.
Hér er hægt að nálgast Iðnþingsblaðið.
Forsida-Idnthingsblads