Viðhorf til Evrópumála er kannað reglulega
Samtök iðnaðarins hafa þá stefnu að Ísland verði aðili að Evrópusambandinu og taki upp evru. Þá ákvörðun hefur stjórn SI tekið fyrir mörgum árum. Bæði ráðgjafaráð og Iðnþing hafa staðfest þá stefnu. Þann 17. júlí 2009 sótti svo Ísland um aðild að ESB.
Aðild að ESB er stórmál og um það þarf að ríkja sem best samstaða. Þess vegna hafa SI lagt mikla áherslu á að kanna vel hug sinna félagsmanna til þessa máls og sömuleiðis alls almennings í landinu. SI hafa átt góða samvinnu við IMG Gallup, nú Capacent Gallup, sem hefur séð um framkvæmd allra viðhorfskannana þeirra um Evrópumálin. Allar kannanirnar er að finna í heild sinni hér fyrir neðan og er heimilt að vitna til þeirra enda sé heimilda getið.
Samtök iðnaðarins hafa kannað viðhorf almennings til aðildar að ESB með reglubundnum hætti frá ágúst 2000. Ekki fer milli mála að mikill meirihluti var þeirrar skoðunar að tæka ætti upp viðræður um aðild Íslands að ESB. Svo var í öllum könnunum í þau sex ár sem spurt var hvort svarendur væru hlynntir eða andvígir því að taka um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Þegar spurt er beint: Ertu hlynntur eða andvígur aðild að Evrópusambandinu, hefur verið mjórra á munum. Nítján sinnum hefur verið spurt og hafa þeir sem eru hlynntir oftast verið fleiri. Þeir sem eru andvígir hafa fjórum sinnum verið fleiri en einu sinni voru jafnmargir hlynntir aðild og voru henni andvígir. Það er athygliverð sú mikla sveifla frá fjölda þeirra sem eru hlynntir til þeirra sem eru andvígir í síðustu mælingum. Erfitt er að fullyrða nokkuð um ástæður þess en ekki er ólíklegt að hin erfiða Icesave deila við Breta og Hollendinga hafi hér veruleg áhrif.
Skoðanakannanir (símakannanir) meðal almennings tímabilið ágúst 2000 til febrúar 2010 (PDF snið)
Samantekt kannana frá ágúst 2000 til ágúst 2008
febrúar/mars 2010 ágúst/september 2009 - febrúar 2009 - ágúst 2008 - apríl 2008 - febrúar 2008 - janúar 2008 - ágúst 2007 - febrúar 2007 - ágúst 2006 - febrúar 2006 - ágúst 2005 - febrúar 2005 - ágúst 2004 - febrúar 2004 - febrúar 2003 - júlí 2002 - febrúar 2002 - ágúst 2001 - febrúar 2001 - ágúst 2000


Skoðanakannanir (netkannanir) meðal almennings tímabilið maí 2008 - desember 2008 (PDF snið)
janúar 2009 - desember 2008 - nóvember 2008 - október 2008 - júní/júlí 2008 - maí/júní 2008 - apríl/maí 2008


Skoðanakannanir (símakannanir) meðal félagsmanna SI tímabilið ágúst 2000 til febrúar 2007 (PDF snið)
febrúar 2007 - febrúar 2006 - febrúar 2005 - febrúar 2004 - febrúar 2003 - ágúst 2001 - ágúst 2000
SI hefur í kannað viðhorf félagsmanna sinna í nokkur skipti Í tengslum við Iðnþing. Þessar kannanir sína glöggt að félagsmenn SI vilja aðild að ESB og taka upp evru. Jafnframt kemur fram að þeir eru þess fullvissir að það muni leiða til bætts hags fyrir eigið fyrirtæki og efnahag landsins í heild. Ennfremur hefur komið í ljós að skoðanir félagsmanna falla að mestu saman við skoðanir landsmanna en lengst af hafa þó félagsmennirnir verið töluvert jákvæðari í garð evrunnar en landsmenn.


