Samstarfsvettvangur sjávarútvegs & iðnaðar
Samstarfsvettvangur sjávarútvegs og iðnaðar átti 9. starfsár sitt á síðasta ári. Vettvangurinn styður samstarfsverkefni fyrirtækja í iðnaði og sjávarútvegi og hefur tekist að festa sig í sessi sem góður grundvöllur að samstarfi ólíkra aðila sem tengjast sjávarútvegi og fiskvinnslu. Á síðasta ári tók vettvangurinn að sér að meta verkefnisumsóknir vegna átaksverkefnis sjávarútvegsráðherra um aukið vinnsluvirði sjávarútvegs eða AVS- verkefnisins.
Aðilar Samstarfsvettvangs sjávarútvegs og iðnaðar eru auk Samtaka iðnaðar, Samtök fiskvinnslustöðva, LÍÚ, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, sjávarútvegsráðuneytið, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið. Ráðstöfunarfé vettvangsins er um 10 milljón kr. á ári.
