Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2004
Ölgerðin Egill Skallagrímsson í fyrsta sæti fjórða árið í röð
Í dag voru kynntar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar en þetta er í sjötta sinn sem ánægja íslenskra viðskiptavina fjölda fyrirtækja er mæld. Úrtakið var um 8200 manns úr þjóðskrá á aldrinum 15 til 75 ára.
Hafsteinn Már Einarsson hjá IMG Gallup kynnti niðurstöðurnar og sagði m.a. að mikil fylgni væri milli ánægju og tryggðar viðskiptavinar og að tengsl tryggðar og afkomu fyrirtækis væru mjög sterk. Því væri til mikils að vinna að hafa viðskiptavini ánægða.
Í flokki framleiðslufyrirtækja var Ölgerðin Egill Skallagrímsson í fyrsta sæti með 79,10 stig og uppskar sem fyrr mestu ánægju allra fyrirtækja en lækkaði þó örlítið frá fyrra ári eða um 1,3 stig. Ölgerðin fékk jafnframt verðlaun fyrir að ná bestum árangri þeirra 25 fyrirtækja sem mæld voru. Þetta er í fjórða sinn sem Ölgerðin er í fyrsta sæti.

Í flokki fjármálafyrirtækja, þ.e. banka og tryggingafyrirtækja, urðu Sparisjóðirnir efstir sjötta árið í röð með 78,34 stig og hækkuðu um 1,84 stig frá fyrra ári.

Í flokki veitufyrirtækja, þ.e. raforku og símafyrirtækja, varð Hitaveita Suðurnesja í fyrsta sæti þriðja árið í röð með 73,59 stig en lækkaði um 0,31 stig frá fyrra ári en fyrirtækið kom fyrst inn í mælingu árið 2002.

Í flokki smásölufyrirtækja, þ.e. olíufélaga og stórmarkaða, varð Olís í fyrsta sæti og með 70,92 stig tók þar með sæti Nóatúns frá fyrra ári.

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, var að vonum ánægður með niðurstöðuna og sagði hana staðfesta að Ölgerðin væri á réttri leið. „Ölgerðin leggur mikið upp úr gæðum, ekki aðeins gæðum vöru heldur einnig þjónustu og raunar allra þátta rekstrarins. Að fá svona ótvíræða staðfestingu er auðvitað einkar ánægjulegt.“
Sérstaka athygli vakti að ánægja viðskiptavina VÍS hefur vaxið mjög frá síðustu mælingu. Það varð til þess að Ásgeir Baldursson, framkvæmdastjóri hjá VÍS var fenginn til að segja frá hvernig fyrirtækið hefði nýtt sér mælingar Íslensku ánægjuvogarinnar. Ásgeir sagði m.a. að VÍS hefði alltaf tekið niðurstöður mælingarinnar alvarlega og árið 2001 hefði verið ákveðið að skoða sérstaklega orsakatengsl einstakra þátta í voginni og áhrif þeirra á ánægju og tryggð viðskiptavina. Fyrirtækið notaði ánægjuvogina sem einn af lykilþáttum í stefnukorti sínu en fyrirtækið hefur unnið með stefnumiðað árangursmat um nokkurt skeið. Stjórnendur og starfsmenn hefðu farið yfir sérhvern þátt í rekstri fyrirtækisins með það fyrir augum að bæta stöðu þess með þeim árangri að VÍS hefði hækkað um 6,9 stig frá síðustu mælingu.
Íslenska ánægjuvogin veitti einnig sérstaka viðurkenningu þeirri starfsgrein sem náði bestum árangri í flokki mælinga meðal framleiðenda mat- og drykkjarvöru, hönnunarvöru, byggingavöru og neytendavöru til daglegra nota. Viðurkenningin féll í hlut framleiðenda mat- og drykkjarvöru.
Íslenska ánægjuvogin er félag, sem Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og IMG – Gallup standa að hvað varðar þátttöku í Evrópsku ánægjuvoginni. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té samræmdar mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig nokkrum öðrum þáttum, sem hafa áhrif á hana, s.s. ímynd, mat á gæðum, og tryggð viðskiptavina. Mælingin er talin mjög mikilvæg þar sem rannsóknir hafa leitt í ljós að því ánægðari sem viðskiptavinir fyrirtækis eru því betri afkomu getur það get sér vonir um.
- Kynning á niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar 2004 (PDF snið)
- Heildarniðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2004 (PDF snið)
Nánari upplýsingar veitir Davíð Lúðvíksson hjá SI í síma 591 0114 eða 8246114
