Lögfræðileg málefni

Mannvirkjagerd4

14.05.2012 : Hæstiréttur dæmir Íbúðalánasjóð til að greiða félagsmanni SI skaðabætur

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu síðastliðinn fimmtudag að Íbúðalánasjóður ætti að greiða byggingafyrirtækinu Norðurvík ehf. skaðabætur vegna ólögmætrar kröfu sjóðsins um bankaábyrgð samhliða lánveitingu úr sjóðnum. SI studdu Norðurvík ehf. með rekstur dómsmálsins.

 
Borgartún 35

28.02.2012 : Dómur Hæstaréttar um gengislán skapar margvíslega óvissu sem brýnt er að skýra

Stjórn SI ræddi í dag á fundi um nýfallinn dóm Hæstaréttar um vexti á gengislánum. Samtökin standa fyrir morgunverðarfundi nk. föstudag þar sem Ragnar H. Hall og Þorsteinn Einarsson hæstaréttarlögmenn og Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur ræða um dóminn og áhrif hans.  
 
Borgartún 35

16.02.2012 : Brýnt að skýra réttaráhrif dómsins

Dómur Hæstaréttar í gær um að óheimilt hafi verið að reikna vexti af lánum afturvirkt miðað við íslenska óverðtryggða vexti skapar margvíslega óvissu sem brýnt er skýra. Endurreikna þarf gífurlegan fjölda lánasamninga og ljóst er að lög sem alþingi setti í desember 2010 um hvernig ætti að standa að vaxtaútreikningi gengistryggðra lána standast ekki.
 
Borgartún 35

02.02.2012 : Lög um svæðisbundna flutningsjöfnun

Nú um áramótin tóku gildi lög um svæðisbundna flutningsjöfnun. Markmið laganna er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni með því að jafna flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skertari samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar en framleiðendur staðsettir nær markaði.
 
Prósentumerki

03.01.2012 : Ýmsar breytingar á sköttum og gjöldum

Samtök iðnaðarins hafa tekið saman meðfylgjandi yfirlit yfir helstu breytingar á sköttum og gjöldum sem tóku gildi nú um áramótin og hafa áhrif á félagsmenn. Ekki er um endanlega upptalningu að ræða og er þeim sem vilja kynna sér málið frekar bent á vefi alþingis og ríkisskattstjóra.

 

Senda grein




Þetta vefsvæði byggir á Eplica